RT50 hlaupabrettið frá FitCo er vandað bretti sem hannað er fyrir heimahús. Brettið hentar þeim sem vilja taka kröftugar æfingar heima fyrir enda fleytir 3 hestafla mótorinn brettinu í allt að 20km/h. Hallamótorinn í brettinu er vandaður en hann nær allt að 15% halla sem að er frábær kostur fyrir þá sem vilja minnka hraðann og auka álag með hækkun. Brettið er samanbrjótanlegt en það er afar auðvelt að leggja það upp og trylla því svo um á hjólum sem eru á grunni þess.
Hlaupasvæðið á brettinu er stórt (140x51cm) svo að nóg pláss er fyrir leggjalanga. Brettið er búið fjöðrunarkerfi en undir brettinu sjálfu eru 8 fjaðrandi punktar sem að tryggja góða fjöðrun á öllu hlaupasvæðinu. Brettið er hannað til þess að þola að hámarki 130kg notanda.
Mælaborðið á brettinu sýnir allar helstu lykilupplýsingar (tíma, hraða, halla, vegalengd, “pace”, skref, kaloríur og púls) og býður upp á 13 æfingakerfi sem hægt er að velja á milli. Uppstillingin á upplýsingum er ansi góð en hraði og halli eru alveg sér á báti beggja vegna við upplýsingaskjáinn svo að það er alltaf auðvelt að sjá þessar lykilbreytur.
Tækniupplýsingar:
- Mótor: 3 hestöfl DC
- Hlaupasvæði: 140x51cm
- Hraði: 0,8-20km/h, 0,1km/h þrep
- Halli: 0-15% rafstýrður hallamótor
- Mælaborð sýnir: Tíma, hraða, halla, vegalengd, “pace”, skref, kaloríur og púls
- Skjár: LCD
- Æfingakerfi: 13
- Flýtihnappar: 3 hraðahnappar og 3 hallahnappar
- Púlsmæling: Púlsmælar eru á handföngum
- Fjöðrunarkerfi: Já, 8 fjaðrandi punktar
- Hámarksþyngd notanda: 130kg
- Stærð í notkun (LxBxH): 179,5cm x 88cm x 152,5cm
- Stærð kassa (LxBxH): 200cm x 96cm x 32cm
- Þyngd brettis: 90kg
- Þyngd kassa: 103kg
- Ábyrgð: 2ár