Life Fitness F3 hlaupabretti

Frá 529.995 kr.

  • Hágæða hlaupabretti í fullri stærð
  • Hægt að brjóta upp og auðvelt að færa hana til
  • Flexdeck fjöðrun minnkar álag á liðamót
  • Val um tvö mælaborð
  • 159kg hámarksþyngd notanda
  • Lífstíðarábyrgð á grind og fjöðrun
  • Þetta bretti þarf að smyrja reglulega með sílíkoni, sjá leiðbeiningar í flipa hér fyrir neðan
Vilt þú bæta við?
1 × Motta undir hlaupabretti

Á lager

9.995 kr.
2.995 kr.
GO
GO
Track Connect
Track Connect

F3 Hlaupabrautin frá Life Fitness er í fullri stærð, stöðug og með einstaklega gott fjöðrunarkerfi ásamt því að vera samanbrjótanleg. Hágæða íhlutir og fagmannlegur frágangur tryggir að brautin mun þola mikla notkun í fjölda ára. Aðalkostur F3 þegar miðað er við aðrar brautir frá Life Fitness er sá að hægt er að brjóta brautina saman og færa hana til á hjólum sem koma niður úr henni þegar hún fer í uppreista stöðu. Life Fitness líkamsræktartæki eru af slíkum gæðum að þú getur aðeins vænst þess besta.

 

Púlsmæling

Púlsmælifletir eru á handföngum ásamt því að með mælaborðinu fylgir púlsskynjari sem hægt er að festa utan um brjóstið á notanda fyrir sem nákvæmasta mælingu.

Auðveld í notkun

Brautin er afar auðveld í notkun, sama hvort mælaborð er valið. Viðhald við brautina er afar lítið og auðvelt að þrífa t.d. glasahaldara.

Quick Start

Hlaupabrautin man eftir hraða sem notandi velur fyrir göngu, skokk og hlaup. Þetta minni nýtir hún þegar notaður er quick start eiginleikinn þar sem hægt er að fara beint af stað án þess að ákveða æfingaprógram.

Flexdeck fjöðrun

Flexdeck fjöðrunarkerfið er það sem gerir Life Fitness brautir mjúkar og góðar fyrir liðamót. Kerfið getur minnkað álag á hné og liðamót um allt að 30%.

Helstu mál o.fl.

  • Lágmarks hraði: 0,8 km/h
  • Hámarks hraði: 16 km/h
  • Hámarks halli: 12%
  • Minnsta breyting á halla: 0,5%
  • Glasahaldarar: 2
  • Innbyggður aukahluta haldari: Já
  • Ergobar: Já
  • Flexdeck fjöðrun: Já
  • Göngu, skokk og hlaupa stillingar: Já
  • Samanbrjótanleg: Já
  • Stærð (L x B x H): 200cm x 88cm x 149cm
  • Stærð hlaupasvæðis: 140cm x 51cm
  • Þyngd tækis: 120kg
  • Hámarksþyngd notanda: 159kg
  • Mótor: 3 hestafla DC mótor með Magnadrive stýringu
  • Ábyrgð: lífstíð á ramma og LifeSpring dempurum; 10 ár á mótor, 5 ár á pörtum.
  • Tengimöguleikar við afþreyingu: Fer eftir mælaborði

Hvernig á að smyrja bretti

Hlaupabretti þurfa reglulegt viðhald til þess að þau renni ljúft og endist vel. Það sem helst þarf að passa er smurningin en ef að bretti ná að þorna þá myndast núningur sem verður til þess að mótorinn erfiðar og á endanum geta ýmsir íhlutir gefið undan. Langflest hlaupabretti sem hönnuð eru fyrir heimahús eru smurð með sílíkoni og það er mjög mikilvægt að smyrja ekki með neinu öðru smurefni ef svo er.

Sílíkon bretti þarf að smyrja á um 150-200km fresti eða 3 mánaða fresti, hvort sem kemur fyrst.

Annað sem þarf svo að passa er þrifnaður en það þarf að ryksuga í kringum brettin reglulega svo að sem minnst ryk safnist fyrir undir mótorhlífinni. Æskilegt er að ryksuga svo undir mótorhlífinni annað slagið en tíðnin fer algerlega eftir aðstæðum (yfirleitt dugar að ryksuga undir hlífinni 1 sinni á ári ef brettið er í heimahúsi).

Hér er myndband sem að sýnir hvernig smyrja á sílíkon hlaupabretti, flest hlaupabretti eru smurð með þessum hætti en athugaðu fyrst í bæklingnum hvort að það sé ekki örugglega sílíkon sem að smyrja á með – ef þú ert í einhverjum vafa getur þú hringt í okkur og fengið upplýsingar:

 

Hér er myndband sem sýnir hvernig á að ryksuga undir mótorhlífinni: