
Við bjóðum upp á faglega samsetningu og afhendingu líkamsræktartækja í völdum póstnúmerum á höfuðborgarsvæðinu. Samsetningarþjónustan er valkvæð viðbót sem hægt er að velja þegar tæki er keypt hjá Hreysti.
Við bjóðum þessa þjónustu meðal annars fyrir hlaupabretti, æfingahjól, crosstrainera, róðravélar, styrktartæki og annan líkamsræktarbúnað sem getur verið þungur eða tímafrekur í samsetningu.
Markmiðið er að viðskiptavinurinn fái tækið samsett, villuprófað og tilbúið til notkunar án þess að þurfa svo að fara með pakkningar í sorpu.

Þegar stærð tækisins og aðstæður leyfa setjum við tækið saman á verkstæði okkar áður en það er afhent. Þar förum við yfir samsetninguna, framkvæmum nauðsynlegar stillingar og prófum virkni tækisins.
Í þeim tilfellum getur þurft að flytja tækið í nokkrum hlutum og ljúka samsetningunni á afhendingarstað.
Við komum tækinu fyrir á umsömdum stað og ljúkum nauðsynlegri samsetningu og stillingum. Að verki loknu tökum við allar pakkningar og umbúðir með okkur.
Pappi, plast og annað umbúðaefni er flokkað og því skilað í Sorpu. Viðskiptavinurinn situr því ekki eftir með stóra kassa og umbúðir heldur fær tækið tilbúið til notkunar.

Líkamsræktartæki geta verið stór, þung og fyrirferðarmikil. Mikilvægt er því að við fáum réttar upplýsingar um aðgengi áður en afhending fer fram.
Láta þarf okkur vita fyrirfram ef:
Í sumum tilvikum getur kostnaður við afhendingu aukist vegna þess að kalla þarf til auka mannskap. Svæðið þar sem tækið á að standa þarf að vera autt og aðgengilegt þegar afhending fer fram.
Samsetning og heimsending eru tvær aðskildar þjónustur.
Heimsending er ekki innifalin í verði samsetningar og bætist sendingarkostnaður því við samkvæmt þeim afhendingarmöguleikum sem í boði eru fyrir viðkomandi vöru og póstnúmer.
Afhending á samsettum tækjum er í boði í eftirfarandi póstnúmerum á höfuðborgarsvæðinu:
Þegar stærð tækisins og aðgengi leyfa setjum við tækið saman og prófum það á verkstæði okkar fyrir afhendingu.
Nei. Heimsending er gjaldfærð sérstaklega og er ekki innifalin í verði samsetningar.
Já. Við tökum pakkningar og umbúðir með okkur, flokkum og skilum þeim í Sorpu.
Það fer eftir stærð og þyngd tækisins og aðstæðum á afhendingarstað. Við metum hvert tilfelli sérstaklega og getum óskað eftir myndum eða málum áður en afhending er staðfest.
Samsetning er valkvæð viðbótarþjónusta sem er í boði þegar viðkomandi líkamsræktartæki er keypt hjá Hreysti. Við getum tekið að okkur samsetningu á tækjum frá öðrum framleiðendum en sú vinna fer fram í tímakaupi.