UM OKKUR
Hreysti er fjölskyldufyrirtæki sem að sérhæfir sig í innflutningi og sölu á íþróttavörum. Okkar hlutverk er að aðstoða viðskiptavini að ná heilsutengdum markmiðum með breiðu vöruúrvali sem byggt er á grunni sérþekkingar starfsfólks okkar. Hreysti stendur fyrir heilbrigði, vellíðan, jákvæðni og dugnað.
Hreysti hefur starfað síðan 1988 og rekur nú verslun og netverslun auk lagerhúsnæðis. Hreysti hefur í gegnum árin ræktað sambönd við stóra og sterka birgja og framleiðendur. Með milliliðalausum kaupum náum við sem hagstæðustum vörukaupum sem skila sér í lægra verði til viðskiptavina.
Árið 2020 litu fyrstu vörurnar í Hreysti línunni ljós eftir ansi langan aðdraganda. Lyftingalínan og íþróttadrykkurinn Batterí voru fyrstu vörurnar en til lengri tíma munum við bæta verulega í línuna. Þú getur verið viss um að æfingavörur úr Hreysti línunni séu bæði vandaðar og á góðu verði – fæðubótarefni frá Hreysti getur þú treyst að séu næringarrík, bragðgóð og laus við öll ólögleg efni.
Í gegnum tíðina hefur Hreysti lagt sitt af mörkum til samfélagsins. Við styrkjum hin ýmsu íþróttalið og einstaklinga sem að til okkar leita á vegferð sinni til bætinga. Frá því að fyrirtækið hóf störf árið 1988 höfum við styrkt hundruði íþróttafólks með æfingavörum og fæðubótarefnum.
Umhverfisstefna Hreysti byggir á því að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum þar sem hægt er, margt smátt gerir eitt stórt. Umbúðir eru endurnýttar við pökkun á netpöntunum og allur afgangur er flokkaður og honum skilað í sorpu. Rafrænar leiðir eru nýttar þar sem hægt er til þess að minnka pappírsnotkun. Þar sem völ er á veljum við vörur sem nýta pappa í pakkningum í stað plasts.
Starfsfólk

Eggert Stefán Kaldalóns Jónsson
Eigandi

Gunnar Emil Eggertsson
Framkvæmdastjóri

Sigríður Sunneva Eggertsdóttir
Markaðsstjóri

Brynjúlfur Jónatansson
Sala & ráðgjöf

Jakob Daníel Jakobsson
Sala & ráðgjöf

Oskar Gonzalez Gudbrandsson
Tæknimaður

Ísak Atli Eggertsson
Þjónusta
