Cardiostrong RX40 róðravél

144.995 kr.

  • Öflug róðravél sem hönnuð er fyrir heimahús
  • Notast við blöndu af loftmótstöðu og segulmótstöðu
  • 16 mótstöðustillingar
  • Mælaborð sýnir allar helstu upplýsingarnar
  • Sterkur grunnur sem þolir allt að 120kg
  • Afar auðvelt er að brjóta vélina saman

Á lager

Vilt þú bæta við?
6.000 kr.
1 × Motta undir róðravél

Á lager

9.995 kr.

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI

RX40 róðravélin frá Cardiostrong er flott róðravél sem hönnuð er fyrir notkun í heimahúsum. Róðravélin er með sterkum grunni sem afar auðvelt er að brjóta saman. Cardiostrong notast við blöndu af loft og segulmótstöðu sem að gerir togið mjúkt og þægilegt. Þú getur flakkað á milli 28 æfingakerfa sem að skjárinn býður upp á og stillt á milli 16 mótstöðustiga.

Það að brjóta saman RX40 róðravélina er einstaklega einfalt – það er handfang undir fótstigunum sem að þú notar til þess að losa um og lyfta upp aftari hluta vélarinnar. Þegar vélin er í uppréttri stöðu þá tekur hún afar lítið pláss sem að gerir vélina frábæra í heimahús.

RX40 róðravélin hentar þeim sem vilja geta tekið öfluga æfingu heima fyrir á tæki sem að býður upp á fjölda æfingakerfa og er auðvelt að pakka saman.

  • Mótstaða: Loft og segulmótstaða
  • Æfingakerfi: 28 í heildina
  • LCD skjár sýnir: Hraða, tíma, kaloríubrennslu, púls (ef þú tengir við púlsmæli), togtíðni og wött
  • Mótstöðustillingar: 16
  • Hægt að brjóta saman: Já
  • Hjól á grunni: Já
  • Hámarksþyngd notanda: 120kg
  • Stærð í notkun (LxBxH): 195,5cm x 40,4cm x 60cm
  • Stærð samanbrotin (LxBxH): 87cm x 40,4cm x 146cm