Cardiostrong BC50 þrekhjól

174.995 kr.

  • Vandað sitjandi þrekhjól sem hannað er fyrir heimahús
  • Afar auðvelt er að færa sæti fram/aftur
  • Bakið andar vel og heldur notanda svalari fyrir vikið
  • Þú getur flakkað á milli 32 mótstöðustillinga
  • 19 æfingakerfi eru í boði
  • Grunnurinn er tvískiptur svo auðvelt er að setjast niður
  • Hámarksþyngd notanda er 150kg

Á lager

Vilt þú bæta við?
6.000 kr.
1 × Motta undir hlaupabretti

Á lager

9.995 kr.

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI

BC50 þrekhjólið frá Cardiostrong er snilld fyrir þá sem vilja stöðugt þrekhjól með góðu baki. Afar auðvelt er að stilla sæti fram/aftur með sveif sem er til hliðar við sætið sjálft. Grunnurinn er tvískiptur svo að afar auðvelt er að setjast niður á sætið. Sætið er vel bólstrað en bakið andar. Til hliðar við sætið eru handföng með innbyggðum púlsmælum sem auðvelt er að nota á meðan maður hjólar. Handföng við mælaborðið hjálpa þér svo til við að setjast niður eða standa upp af hjólinu.

Hreyfingarnar á hjólinu eru mjúkar og fara almennt vel með liðamót sem að gerir hjólin að frábæru tæki fyrir þá sem eru að jafna sig eftir meiðsli eða vilja einfaldlega góða þrekæfingu sem reynir lítið á liðamót. Kasthjólið er nægilega þungt til þess að snúningurinn sé jafn og góður alveg í gegnum allar mótstöðustillingarnar. Hjólið byggir á segulmótstöðubúnaði sem að er hljóðlátur og viðhaldsfrír.

Mælaborðið sýnir allar helstu æfingaupplýsingar (tíma, hraða, vegalengd o.s.frv.) auk þess að bjóða upp á 19 æfingakerfi, þar af 1 stillanlegt og 4 púlsstýrð. Þú getur flakkað á milli 32 mótstöðustillinga en það eru fleiri stillingar en almennt eru á þrekhjólum.

BC50 þrekhjólið er frábært fyrir þá sem vilja stöðugt þrekhjól með baki sem að auðvelt er að taka æfingu á.

Helstu mál o.fl.

  • Mótstaða: Segulbremsa
  • Segulbremsa: 10-350 wött
  • Kasthjól: 7kg
  • Gírhlutfall: 1:8,1
  • Lengd sveifu: 17cm
  • Skjár sýnir: Tíma, vegalengd, hraða, wött, snúningshraða, kaloríur, púls (ef þú tengir við púlsmæli)
  • Æfingakerfi: 19 í heild, þar af 1 stillanlegt og 4 púlsstýrð
  • Mótstöðustig: 32
  • Sætisstillingar: Fram/aftur
  • Púlsmælar: Í handföngum við sæti
  • Þarf að tengja við rafmagn: Já
  • Hámarksþyngd notanda: 150kg
  • Stærð (LxBxH): 173cm x 67cm x 112cm