Life Fitness IC4 spinning hjól

284.995 kr.

  • Professional spinning hjól
  • Stillingar upp/niður & fram/aftur á bæði hnakk og stýri
  • Poly-v belti þarfnast minna viðhalds en keðja
  • Hljóðlát segulmótstaða
  • Platti fyrir snjallsíma á stýri
  • 155mm Q-factor
  • Stílhreint útlit
  • Hámarksþyngd notanda: 150kg

Á lager

Vilt þú bæta við?
6.995 kr.

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI

Life Fitness IC4 spinning hjólin eru sérlega vönduð hjól sem að henta vel til notkunar í jafnt heimahúsi sem og æfingastöð. Hjólið sameinar fallega hönnun og hágæða íhluti til þess að skapa sem bestu upplifun fyrir notandann. Með IC4 spinning hjólinu getur þú tekið öfluga æfingu heima fyrir.

Hjólið er afar þægilegt í notkun en bæði hnakk og stýri er hægt að stilla bæði fram og aftur. Það að koma sér í réttu stellinguna á hjólinu skiptir gríðarlega miklu máli eins og allir sem eitthvað hafa stundað hjólreiðar vita. Stýrið á hjólinu er gripgott og húðað með mjúkri húð sem að minnkar álag á hendur. Stýrið er hannað þannig að hægt sé að vera í nokkrum mismunandi stellingum án þess að þurfa að breyta um stillingar á stýrispóstinum.

IC4 hjólið byggir á segulmótstöðu sem að er svo gott sem viðhaldsfrír búnaður sem lítið heyrist í. Notað er sérstakt Poly-V belti sem að er gríðarlega sterkt og þarfnast ekki reglulegs viðhalds eins og t.d. Keðja. Stjórnað er mótstöðunni með flipa sem að virkar einnig sem neyðarbremsa. Sérstök hlíf umlykur búnaðinn í hjólinu til þess að vernda hann frá svita og ryki.

Helstu mál o.fl.

  • Mótstöðustilling: Mótstöðuflipi á stýrispósti
  • Mótstaða: Segulbremsa
  • Efni í grind: Stál
  • Stýri: Fjölgrip, húðað með mjúku PVC
  • Stýrisstillingar: Upp/niður, fram/aftur
  • Sætisstillingar: upp/niður, fram/aftur
  • Pedalar: Standard og SPD (Dual sided)
  • Hlífar: Drifbúnaður og rammi eru búnir hlífum sem að verndar frá svita o.s.frv.
  • Hjól á grind: Já, tvö að framan
  • Vatnsbrúsahaldari: Já, á stýri
  • Þyngd, samsett: 50kg
  • Stærð (L x B x H): 132cm X 52cm X 120cm
  • Drifbúnaður: Poly-v belti, segulmótstaða
  • Gírhlutfall drifbúnaðar: 1:10
  • Hámarksþyngd notanda: 150kg
  • Q-Factor: 155mm
  • Sveif: CrMo 172,5mm