HX róðravélin frá Life Fitness gerir þér kleift að taka æfingar heima fyrir sem reyna á allan líkamann án þess að leggja mikið álag á liðamót. Vélin er búin vökvakerfi sem að skilar sér í mjúku togi sem líkir eftir raunverulegum róðri. Viður og stál mynda heild sem að passar vel í heimahús ásamt því að endast vel. Með vélinni kemur HX mælaborðið sem sýnir þér allar helstu upplýsingar.
Náttúrulegt átak
Vökvakerfið í HX róðravélinni líkir eftir raunverulegum róðri en átakið er mjúkt og jafnt í gegn. Auk þess verður vélin hljóðlátari en ef um loftmótstöðu væri að ræða.
Auðvelt að stilla mótstöðu
Hægt er að velja um 4 mismunandi mótstöðustig með snúningshjóli sem staðsett er á vatnstankinum. Með þessum stillingum á hver og einn að geta fundið mótstöðu við sitt hæfi.
Hönnun sem skarar fram úr
Náttúrulegur viður og temprað stál mynda heild sem að passar vel inn í hvaða rými sem er án þess að fórna endingu. Stálið heldur vélinni stöðugri og tryggir að hún endist og endist.
Passar vel inn í heimili
Vélin er nett og á að passa vel inn á heimili án þess þó að fórna virkni. Hægt er að trylla vélinni um gólf á hjólum sem eru á enda hennar og auðvelt er að tylla vélinni upp svo hún taki lítið gólfpláss (upprétt er vélin um 213cm há).
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.