Life Fitness RS1 sitjandi þrekhjól

Frá 394.995 kr.

  • Sterkt og stöðugt sitjandi þrekhjól í fullri stærð
  • Bil milli sætis og stýris gerir aðgang að sæti greiðann
  • Auðvelt er að stilla sæti fram/aftur
  • Segulmótstaða er hljóðlát og viðhaldsfrí
  • 20 mótstöðustig og val um tvö mælaborð
  • Lífstíðarábyrgð á grind
Vilt þú bæta við?
1 × Motta undir hlaupabretti

Á lager

9.995 kr.
GO
GO
Track Connect
Track Connect

RS1 þrekhjólin eru sitjandi þrekhjól sem eru hönnuð með þægindi, endingu og útlit í huga. Grunnur hjólsins er þannig að opið er á milli sætis og stýris. Þetta bil gerir aðgang að sætinu góðan sem gerir hjólið frábært fyrir þá sem eru t.d. Að berjast við hnémeiðsli.

Grunnurinn er gríðarlega sterkur en hámarksþyngd notanda er 137kg og á honum er lífstíðarábyrgð. Sætið sjálft situr á sleða sem gerir þér auðvelt fyrir að færa það fram eða aftur. Púlsmælar eru í handföngum sem auðvelt er að halda í en mælarnir senda upplýsingar í mælaborðið.

Segulmótstaða er notuð í stað núningsbremsu en segulmótstaðan gefur jafnara átak, er hljóðlát og þarfnast minna viðhalds. Um tvö mælaborð er að velja, GO og Track Connect. Þú getur lesið þér til um mælaborðin með því að smella á “GO” eða “Track Connect” flipana. Með hjólinu fylgir púlsskynjari.

Life Fitness æfingatækin eru af slíkum gæðum að þú getur aðeins vænst þess besta.

Helstu mál o.fl.

  • Stilli-möguleikar á sæti: 13
  • Glasahaldarar: 1
  • Innbyggður aukahluta haldari: Nei
  • Pedalar: Standard pedalar með góðum gripfleti og strappa
  • Styrktarstig mótstöðu: 20
  • Sæti: Standard bólstrað sæti
  • Hjól á framenda: Já
  • Handföng: Handföng á hliðum og eitt handfang að framan
  • Pedala strappar: Já
  • Opinn miðstokkur: Já
  • Ábyrgð: lífstíðarábyrgð á ramma, 5 ára ábyrgð á pörtum
  • Stærð (Lengd x Breidd x Hæð): 169cm x 65cm x 131cm
  • Þyngd: 61kg
  • Hámarksþyngd notanda: 137kg