Concept2 Bikeerg þrekhjól

224.995 kr.

  • Öflugt loftmótstöðuhjól
  • Stillanleg mótstaða
  • PM5 æfingatölva
  • Hægt að stilla bæði sæti og stýri
  • Léttur rammi sem auðvelt er að færa til

Ekki til á lager

Láta mig vita þegar vara kemur aftur

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI

Bikeerg hjólið frá Concept2 byggir á sömu tækni og er í róðravélunum og skíðavélunum frá þeim. Hjólið er hannað fyrir jafnt æfingastöðvar sem heimahús og þolir því talsverða notkun. Þar sem að hjólið byggir á loftmótstöðu þá er mótstaðan ansi jöfn og mjúk. Hjólið er með kúplingu svo að þegar þú hættir að hjóla á stöðvast pedalarnir en kasthjólið heldur áfram að snúast – eins og á reiðhjólum.

PM5 æfingatölvan er afar sniðug og einföld æfingatölva sem opnar á fjölda æfingamöguleika. Innbyggt í tölvuna eru fjöldi æfinga en þú getur líka tengt tölvuna við snjalltæki, púlsmæla o.fl.

Til þess að þú komir þér örugglega í réttu stöðuna þá getur þú stillt bæði hnakk og stýri. Hámarksþyngd notanda er svo 136kg en vélin sjálf vegur ekki nema 26kg.

  • Lengd: 122cm
  • Breidd: 61cm
  • Sætishæð: 79-103cm
  • Lengd sveifa: 170mm
  • Q-Factor: 155mm
  • Drifbúnaður: Sjálfherðandi polygroove reim
  • Æfingatölva: PM5
  • Orka fyrir tölvu: Tvö D cell batterý en notkun lengir svo líf rafhlaðanna
  • Hámarksþyngd notanda: 136kg
  • Rammi: Soðinn álrammi, stálfætur
  • Áferð: Svört duftmálning á ramma
  • Þyngd tækis: 26kg
  • Stærð kassa: 38x66x122cm
  • Þyngd kassa: 37kg