Teeter Freestep LT1 Þrekþjálfi
179.995 kr.
- Vandaður þrekþjálfi með sæti og sætisbaki
- Afar mjúk hreyfing sem fer vel með liðamót
- Stillanleg handföng
- 3 hallastillingar á sæti
- Hljóðlát segulmótstaða
- Mælaborð sýnir lykilupplýsingar
- 136kg hámarksþyngd notanda
Á lager
FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI
- Heimsending með TVG Xpress: 2.995 kr
- Sent á pósthús: 2.495 kr
- Sækja í verslun: Frítt
Freestep þrekþjálfinn frá Teeter er frábær fyrir þá sem vilja taka æfingar heima fyrir sem fara vel með liðamót. Hreyfiferillinn í tækinu er úthugsaður en hann leggur minna álag á hné heldur en þrekhjól (þar sem þú þarft að snúa í hringi í stað þess að fara fram/aftur). Með því að bæta hreyfingum með höndum við hreyfinguna eykst áreynslan við æfinguna og hún verður áhrifaríkari.
Sætið á þrekþjálfanum er bólstrað og þægilegt en þú getur stillt hæð þess og halla á baki. Handföng eru stillanleg og gripin þannig í laginu að þú hefur val um mismunandi stellingar sem reyna á vöðvana á ólíkan hátt. 13 mótstöðustillingar eru á þjálfanum og auðvelt er að flakka á milli þeirra með snúningstakka sem er fyrir aftan sætið. Mælaborðið sýnir svo allar helstu upplýsingar en það gengur fyrir rafhlöðum og því þarf ekki að stinga tækinu í samband við rafmagn.
Loksins er hér á ferðinni tæki sem líkir verulega eftir stóru tækjunum sem finna má í sjúkraþjálfunarstöðvum nema allt nettara og hentugra í heimaþjálfun.
Helstu mál o.fl.
- Kasthjól: 7kg
- Handföng: 8 lengdarstillingar, mjúk frauðgrip
- Sæti: Hægt að stilla hæð sætis og halla sætisbaks
- Lengd: 141cm
- Breidd: 97cm
- Hæð: 134cm
- Þyngd tækis: 49kg
- Mótstöðustillingar: 13
- Æfingatölva sýnir: Tíma, vegalengd, hraða og kaloríubrennslu
- Hámarksþyngd notanda: 136kg
- Gengur fyrir: Rafhlöðum (þarf ekki að stinga í samband)
Life Fitness C3 þrekhjól
409.995 kr. – 489.995 kr.Life Fitness T3 hlaupabretti
529.995 kr. – 609.995 kr.OPNUNARTÍMI
- Virka daga: 10-18
- Laugardaga: 11-15
- Sunnudaga: Lokað
- 20. des: 10-19
- 21. des: 11-18
- 22. des: 12-16
- 23. des: 10-20
- 24. des: 10-12