50kg settið frá York Fitness hefur verið afar vinsælt hjá okkur í gegnum árin. Settið inniheldur bæði stóra stöng (152cm) og tvær handlóðastangir. Lóðin í settinu er svo hægt að nota á bæði stóru og litlu stangirnar enda eru endarnir á þeim þeir sömu (25mm þvermál). Við settið er svo alltaf hægt að bæta við stökum plötum sem að við seljum í stykkjatali.
Vandað lóðasett frá York sem inniheldur:
- 4x 5kg plötur
- 4x 2,5kg plötur
- 6x 1,25kg plötur
- 6x 0,5kg plötur
- 2x handlóðastangir
- 1x Lyftingastöng
Lyftingasettið kemur í tveimur pappakössum með stakri 152cm lyftingastöng
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.