York FTS Lyftingastandur

79.995 kr.

  • Pressu/hnébeygjustandur úr FTS línunni frá York Barbell
  • Sterkur standur sem hægt er að stilla hæðina á
  • Passar ólympískum lyftingastöngum eða löngum heimastöngum
  • “Light commercial” standur

Á lager

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI

FTS pressu/hnébeygjustandurinn frá York Barbell er afar veglegur standur sem hentar vel í minni stofnanir eða í heimahús. Standurinn hentar vel (eins og nafnið gefur til kynna) í pressur og beygjur en hægt er að stilla hæð standsins frá 102cm upp í 154cm með 5cm millibili. Hæð bekkpressuarmsins er hægt að stilla frá 75cm upp í 125cm.

Lengd milli standa er 120cm og því passa aðeins ólympískar stangir eða langar heimastangir á standinn. Aftan á standinum eru lóðafestingar en þær eru 25mm að þvermáli svo ef ætlunin er að geyma þar ólympísk lóð þá þarf að bæta við breytihulsum.

Stærð (LxBxH): 90cm x 125cm x 105cm

FTS línan frá York Barbell er hönnuð fyrir minni æfingastöðvar (hótel, skóla o.s.frv.) en hentar vel í heimahús þar sem tekið er vel á því. Mikil þróunarvinna hefur farið í gerð FTS línunnar og er útkoman endingargóð og stílhrein tæki sem gera nákvæmlega það sem þau þurfa að gera.