Lyftingabúnaður frá SBD er af slíkum gæðum að þú getur aðeins vænst þess besta
5mm þykkar hnéhlífar sem að henta vel í ólympískar lyftingar, crossfit og almenna styrktarþjálfun
5mm þykkar hnéhlífar gefa meira eftir en 7mm hlífarnar og eru því betri í æfingar þar sem þörf er á fullri hreyfigetu
Hlífarnar eru IPF approved og IWF compliant
Neoprene efnið í hlífunum er í hæsta gæðaflokki og með „4-way stretch“
Allir saumar eru styrktir svo að ending er vægast sagt góð
Innra byrði hlífana er hannað svo að hlífarnar renni ekki til
Ytra byrði hlífana er slitsterkt og þolir síendurtekna árekstra við lyftingarstangir
Hannað og framleitt í Bretlandi – einkaleyfisvernduð hönnun
Hlífarnar eru seldar sem par
Stærð miðast við ummál hnés, sjá stærðarvísi neðar á síðunni
Sérútgáfa sem kemur í takmörkuðu upplagi
Fyrsta skiptið sem þú prófar SBD hnéhlíf er einstakt – það eru engar hlífar eins og þær á markaðnum. SBD byrjuðu með 7mm ofurþéttu hlífarnar sem henta frábærlega í kraftlyftingar og almennt mjög þungar lyftingar – þær eru svo stífar að það er hreinlega erfitt að ná „ass to grass“ hnébeygju í þeim.
5mm hlífarnar komu út nokkuð á eftir þeim 7mm en þær eru hannaðar meira með ólympískar lyftingar í huga. 5mm þykktin heftir ekki hreyfiferilinn en efnið sem SBD notar er engu að síður í hæsta gæðaflokki og því veita hlífarnar afbragðs stuðning og hita. Það að hlífarnar séu hannaðir fyrir ólympískar gerir þær einnig afar góðar í crossfit og í raun styrktarþjálfun almennt.
Sama hvort þú ert að reyna að ná nýju meti í snörun eða að passa hnémeiðsli þá eru 5mm hnéhlífarnar frá SBD fyrir þig.
SBD Hnéhlífar 5mm Legacy eru sérútgáfa í takmörkuðu upplagi, alsvartar með SBD logoinu í sama lit. Hlífarnar koma í stærðum XS til 4XL.