Landice L7 Rehab Hlaupabretti
1.049.995 kr.
- Sérhannað í endurhæfingu
- VFX Fjöðrunarkerfi
- 0,16-19,3km/h
- 0-15% halli
- 147x51cm hlaupasvæði
- Framleitt í Bandaríkjunum
- 180kg hámarksþyngd
- Aukahlutir í boði
Á lager
Vilt þú bæta við?
Landice L7 Rehab hlaupabrettið er afar vandað hlaupabretti sem er sérhannað fyrir endurhæfingu en að því sögðu þá virkar það að sjálfsögðu einnig vel í almennar æfingar. Landice hlaupabretti eru framleidd í Bandaríkjunum og hönnuð með velferð notenda og mikla endingu í huga. Landice hefur verið að framleiða þrektæki síðan 1967 og hefur sérhæft sig í framleiðslu á hágæða professional þrektækjum fyrir bæði endurhæfingargeiran og almenna líkamsræktargeiran.
Brautin hefur eiginleika sem ekki eru algengir eins og t.d. álramma (ryðfrítt efni), 1 tommu þykka plötu sem hægt er að snúa við, þykk kefli, löng endurhæfingar handföng og 4 hestafla mótor sem er einnig framleiddur í Bandaríkjunum. Fjöðrunarkerfið í brautinni kalla Landice „VFX Shock Absorption System“ en það var hannað út frá heilbrigðisrannsóknum með það að markmiði að auka þægindi, auka mýkt og endingu ásamt því að minnka líkur á meiðslum. VFX fjöðrunarkerfið gerir brettið 5 sinnum mýkra en að ganga á grasi.
4 hestafla mótorinn er nógu kröftugur til þess að þola allt að 180kg notanda og byrjunarhraða upp á 0,1 mílu á klukkustund eða 0,16km/h. Rafdrifinn hallamótor skilar allt að 450kg krafti en hann er hægt að stilla upp í allt að 15% halla. LCD mælaborðið er einfalt í notkun og hefur upp á 5 innbyggð æfingakerfi að bjóða ásamt 5 kerfum sem hægt er að setja upp eftir eigin höfði.
L7 brettið er hannað fyrir allt að 5 klukkustunda notkun á dag – ef að þú ert að leita að bretti sem þolir meiri notkun þá væri það L8 sem er öflugasta brettið í Landice línunni. L8 brettið er fáanlegt sem sérpöntun.
Landice bjóða upp á ýmsa aukahluti sem hægt er að bæta við gegn gjaldi:
- Belti sem að gengur einnig afturábak
- Start/stop takka sem er festur í brettið með snúru svo að þjálfari geti staðið við hlið brettisins og sett það af stað eða stoppað auðveldlega
- Orthopedic fjöðrunarkerfi sem er 7x mýkra en að hlaupa á grasi
- Sjónvarpsskjá sem festist fyrir ofan mælaborðið
- Spjaldtölvufestingu á mælaborðið
- VESA-D sjónvarpsfestingu fyrir allt að 19″ sjónvarpsskjá
- 100 Micro-Amp hospital isolation leakage kit
Helstu mál o.fl.
- Hámarksþyngd notanda: 180kg
- Þyngd tækis: 135kg
- Mál (LxBxH): 193cm x 89cm x 153cm
- Hlaupasvæði: 147x51cm
- Kefli: 6,35cm (6,3kg)
- Hæð upp á brettið: 14cm
- Hraði: 0,16km/h til 19,3km/h
- Halli: 0-15%
- Mótor: 4 hestafla Continuous Duty Motor
- Plata: 2,54cm, hægt að snúa við
- Mælaborð: Endurhæfingarmælaborð Landice, LCD
- Ábyrgð: 5 ár á lykilpörtum, 3 ár á mælaborði, 2 ár á „wear items“ (t.d. takkar og belti)
OPNUNARTÍMI
- Virka daga: 10-18
- Laugardaga: 11-15
- Sunnudaga: Lokað