Darwin HT30 þrekhjól

89.995 kr.

  • Einfalt en öflugt þrekhjól frá Darwin
  • Hljóðlát og viðhaldsfrí segulmótstaða
  • Þungt kasthjól (7kg) tryggir jafna mótstöðu
  • Sterk grind – hámarksþyngd notanda 120kg
  • 8 mótstöðustillingar
  • Hægt að stilla hnakk fram/aftur og upp/niður
  • Hjól á grunni hjólsins gerir flutning auðveldan

Á lager

Vilt þú bæta við?
6.000 kr.
1 × Motta undir þrekhjól

Ekki til á lager

4.995 kr.

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI

HT 30 þrekhjólið frá Darwin er eitt af þeirra vinsælustu þrekhjólum enda er það á góðum verðpunkti miðað við hversu öflugt það er. Hjólið byggir á segulmótstöðu (líkt og önnur hjól frá Darwin sem að þýðir að það er afar hljóðlátt og viðhaldsfrítt. Þungt kasthjól gerir það að verkum að snúningurinn í hjólinu er mjúkur og jafn, sama hvaða mótstöðu þú ferð í. Grindin í hjólinu er sterk en hámarksþyngd notanda er 120kg.

Mælaborðið á hjólinu er einfalt, stílhreint og gengur fyrir rafhlöðum. Mælaborðið sýnir hraða, tíma, vegalengd o.s.frv. Þú getur flakkað á milli 8 mótstöðustillinga.

Þú átt að geta fundið réttu stillingu fyrir þig á hjólinu en sæti er hægt að færa bæði fram/aftur sem og upp/niður. Stýrið er hægt að tylla að þér eða frá með því að losa um festinguna á því. Á grunni hjólsins eru svo hjól sem að gera þér auðvelt fyrir að færa það í næsta herbergi.

Darwin HT 30 þrekhjólið er frábært fyrir þá sem vilja einfalt, ódýrt en öflugt þrekhjól sem hægt er að taka góða æfingu á.

Helstu mál o.fl.

  • Mótstaða: Segulbremsa
  • Segulbremsa: 10-350 wött
  • Kasthjól: 7kg
  • Gírhlutfall: 1:9,4
  • Lengd sveifu: 17cm
  • Skjár sýnir: Tíma, vegalengd, hraða, wött, snúningshraða, kaloríur, púls
  • Mótstöðustig: 8
  • Sætisstillingar: Fram/aftur & upp/niður
  • Púlsmælar: Í handföngum
  • Þarf að tengja við rafmagn: Nei
  • Hámarksþyngd notanda: 120kg
  • Stærð (LxBxH): 108cm x 56cm x 139cm