FB50 lyftingabekkurinn frá Darwin er afar einfaldur en sniðugur lyftingabekkur. Bekkurinn er með stillanlegt bak sem að hefur 7 stillingar, allt frá niðurhallandi stöðu upp í upprétt stöðu. Bekkurinn er hannaður fyrir notkun í heimahúsi en hann er hægt að brjóta saman svo að hann liggi alveg flatur.
Bekkurinn er með þéttum púðum sem eru 4,5cm þykkir og hámarksþyngd (notandi+lóð) er 125kg. Bekkurinn sjálfur er 129cm langur, 43cm breiður og 36cm hár og samanbrotinn er hann 120cm langur, 43cm breiður og 16cm hár. Sætispúðinn er 27cm breiður, 32cm langur og 4,5cm þykkur; Bakpúðinn er svo 27cm breiður 81cm langur og 4,5cm þykkur.