York FTS Lyftingastandur
79.995 kr.
- Pressu/hnébeygjustandur úr FTS línunni frá York Barbell
- Sterkur standur sem hægt er að stilla hæðina á
- Passar ólympískum lyftingastöngum eða löngum heimastöngum
- “Light commercial” standur
Á lager
FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI
- Heimsending með TVG Xpress: 2.995 kr
- Sent á pósthús: 2.495 kr
- Sækja í verslun: Frítt
FTS pressu/hnébeygjustandurinn frá York Barbell er afar veglegur standur sem hentar vel í minni stofnanir eða í heimahús. Standurinn hentar vel (eins og nafnið gefur til kynna) í pressur og beygjur en hægt er að stilla hæð standsins frá 102cm upp í 154cm með 5cm millibili. Hæð bekkpressuarmsins er hægt að stilla frá 75cm upp í 125cm.
Lengd milli standa er 120cm og því passa aðeins ólympískar stangir eða langar heimastangir á standinn. Aftan á standinum eru lóðafestingar en þær eru 25mm að þvermáli svo ef ætlunin er að geyma þar ólympísk lóð þá þarf að bæta við breytihulsum.
Stærð (LxBxH): 90cm x 125cm x 105cm
FTS línan frá York Barbell er hönnuð fyrir minni æfingastöðvar (hótel, skóla o.s.frv.) en hentar vel í heimahús þar sem tekið er vel á því. Mikil þróunarvinna hefur farið í gerð FTS línunnar og er útkoman endingargóð og stílhrein tæki sem gera nákvæmlega það sem þau þurfa að gera.
Rubrig Gúmmímotta 40mm 50x100cm
5.995 kr.York Fitness spinlock lyftingastöng 25mm
5.995 kr. – 9.995 kr.York Fitness Rubber Hex handlóð
1.295 kr. – 32.495 kr.OPNUNARTÍMI
- Virka daga: 10-18
- Laugardaga: 11-15
- Sunnudaga: Lokað