York Fitness 20kg handlóðasett í tösku
17.995 kr.
- Sígilda handlóðasettið frá York Fitness
- Hefur verið ein söluhæsta varan hjá okkur frá upphafi
- Par af 10kg handlóðum
- Hægt að færa lóðaplötur á milli stanga
- Spinlock festingar halda lóðum á sínum stað
- Hægt að kaupa auka lóð til þess að þyngja enn frekar
- 25mm þvermál á stöng
- Settið kemur í tösku
Á lager
FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | LÍTILL PAKKI
Frí sending ef þú pantar vörur í þessum flokk fyrir meira en 15.000 kr.
- Heimsending með TVG Xpress: 995 kr.
- Sent á pósthús: 795 kr.
- Sækja í verslun: Frítt
20kg handlóðasettið frá York Fitness hefur verið ein söluhæsta vara okkar í fjölda ára. Handlóðasettið er afar auðvelt í notkun en í því eru tvær handlóðastangir, lóðaplötusett og svo spinlock festingar sem tryggja að lóðin haldist á sínum stað. Hægt er að raða upp lóðaplötum eftir þörfum en hámarksþyngd í hvora hönd er 10kg (með lóðunum sem fylgja með í settinu).
Handlóðastangirnar eru með fínskorin handföng sem að tryggja að grip sé gott. Lóðaplöturnar sitja á skrúfgangi sem að spinlock festingarnar skrúfast svo upp á. Spinlock festingarnar eru með gúmmirönd sem að tryggir að lóðaplöturnar haldist á sínum stað ásamt því að minnka hávaða.
Í 20kg handlóðasettinu eru:
- 2x Handlóðastangir
- 4x spinlock festingar
- 4x 2,5kg lóðaplötur
- 4x 1,25kg lóðaplötur
- 4x 0,5kg lóðaplötur
Alltaf er svo hægt að kaupa auka lóðaplötur ef 10kg í hvora hönd er of lítið. Stangirnar eru 25mm í þvermál. Handlóðasettið kemur í plastöskju sem hægt er að raða lóðum og stöngum í.
Escape Studio ketilbjalla 20kg
OPNUNARTÍMI
- Virka daga: 10-18
- Laugardaga: 11-15
- Sunnudaga: Lokað
- 20. des: 10-19
- 21. des: 11-18
- 22. des: 12-16
- 23. des: 10-20
- 24. des: 10-12