TRX Rubber ketilbjöllur

Frá 16.695 kr.

    • Vandaðar ketilbjöllur frá TRX.
    • Gúmmíhúðaðar bjöllur
    • Lituð handföng greina að þyngdir
    • Afbragðs frágangur
    • Snilld í jafnt heimahús sem æfingastöð
    • Ath. bjöllurnar eru seldar í stykkjatali

 

 

 

4kg
4kg
6kg
6kg
8kg
8kg
12kg
12kg
16kg
16kg
20kg
20kg
24kg
24kg
28kg
28kg
32kg
32kg
36kg
36kg
40kg
40kg

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | LÍTILL PAKKI

Frí sending ef þú pantar vörur í þessum flokk fyrir meira en 10.000 kr.

Blandaðu saman styrktarþjálfun og þoli með því að virkja fjölda vöðvahópa í skemmtilegum en krefjandi æfingum með TRX ketilbjöllunum.

Ketilbjöllur eru snilldar viðbót við æfingahringinn en með bjöllunum er hægt að gera fjölda æfinga, allt frá einföldum æfingum eins og hnébeygjum upp í flóknar og tæknilegar hreyfingar eins og snaranir. Bjöllurnar eru að sjálfsögðu afbragðsgóðar í bóndagöngu og satt að segja eru fá æfingatæki sem að er hægt að nýta í jafn fjölbreyttar æfingar. 

Ketilbjöllurnar frá TRX eru búnar til með sérstakri “Gravity Cast” aðferð sem að tryggir að ketilbjöllurnar hafi gríðarlega góða endingu ásamt því að vera með flatann botn, jafna áferð og jöfn handföng sem gera þér auðvelt að grípa í bjölluna. Bjöllurnar eru með lit í botni handfanga sem að gerir þér auðvelt að greina á milli þyngda. Rubber útgáfan er með gúmmíhúð utan um bjölluna sjálfa sem að verndar áferðina á bjöllunni ásamt því að fara betur með gólfefni. Handfangið sjálft er ekki gúmmíhúðað enda myndi það minnka grip.

TRX ketilbjöllurnar eru seldar stakar svo ef þú vilt panta par þá skalt þú setja 2 í “magn”.