Hreysti Bola lyftingastöng 20kg
23.995 kr.
- Einföld ólympísk 20kg lyftingastöng
- Hentar vel í almennar lyftingar
- Ermar festar með boltum
- 30mm fínskorið grip
- Þolir allt að 315kg
- Þolir ekki endurtekin dropp án viðhalds
Á lager
Bola stöngin er einföld ólympísk lyftingastöng sem að hentar afar vel í æfingaraðstöðuna heima fyrir. Bola stöngin er frábær fyrir þá sem vilja einfalda stöng í almennar lyftingar svo sem hnébeygjur, réttstöðulyftur, bekkpressu og svo framvegis. Gripið er fínskorið til hliðanna og í miðjunni svo að þú hefur gott grip sama hvaða æfingu þú ert að taka. Athugið að stöngin þolir ekki endurtekin dropp án viðhalds vegna þess hvernig ermarnar eru festar á stöngina.
Styrkur
Bola stöngin þolir allt að 315kg og er því feikinóg fyrir flesta. Stöngin er með 30mm grip og er því stífari en stangir sem eru með 25-28mm sem gerir hana afar hentuga í kraftlyftingar.
Notkun
Gripið á Bolastönginni er fínskorið til þess að þú hafir gott grip þrátt fyrir sveitta lófa. Ermarnar á Bolastönginni eru festar með bolta en þrátt fyrir það hafa þær ágætis snúning og henta því vel í ýmsar lyftingaræfingar.
Helstu mál o.fl.
- Þyngd: 20kg
- Lengd: 220cm
- Lengd erma: 38,7cm
- Grip: 30mm
- Húðun: Króm
- Fínskurður í gripi: Milligrófur
- Fínskurður á miðju: Já
- Hliðarlínur: Einfaldar