York C19 stillanlegur lyftingabekkur
49.995 kr.
- Stillanlegur lyftingabekkur úr C19 línunni frá York Barbell
- Sterkur bekkur með stillanlegt bak og sæti
- 6 stillingar á baki, 3 stillingar á sæti
- Þykkir en stöðugir púðar
- Afar auðvelt að skipta á milli stillinga
Á lager
FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI
- Heimsending með TVG Xpress: 2.995 kr
- Sent á pósthús: 2.495 kr
- Sækja í verslun: Frítt
Stillanlegi C19 bekkurinn frá York Barbell er vandaður bekkur sem byggður er til þess að endast. Bekkurinn hentar vel í minni stofnanir eða heimahús og á að þola mikla notkun. Bekkurinn hefur 6 hæðarstillingar á baki og 3 hæðarstillingar á sæti. Bekkurinn hentar því vel í ýmsar æfingar en sniðugt er að para hann saman við t.d. FTS pressu/hnébeygjustandinn.
Bekkurinn er með góðan stöðugan grunn og sérstakir gúmmí endar tryggja að bekkurinn fari ekki á flakk. Púðinn í bekknum er mjúkur en þó nógu þéttur til þess að koma í veg fyrir að maður sökkvi ofan í hann þegar tekin er t.d. þung bekkpressa.
Stærð (LxBxH): 120cm x 61cm x 48cm
Hámarksþyngd (notandi+lóð): 270kg
C19 línan frá York Barbell er hönnuð fyrir minni æfingastöðvar (hótel, skóla o.s.frv.) en hentar vel í heimahús þar sem tekið er vel á því. Mikil þróunarvinna hefur farið í gerð FTS línunnar og er útkoman endingargóð og stílhrein tæki sem gera nákvæmlega það sem þau þurfa að gera.
TRX Ketilbjöllur
6.795 kr. – 53.995 kr.OPNUNARTÍMI
- Virka daga: 10-18
- Laugardaga: 11-15
- Sunnudaga: Lokað