FitCo BT20 Þrekhjól
49.995 kr.
- Lítið og nett þrekhjól frá FitCo
- Hljóðlát og viðhaldsfrí segulmótstaða
- 5kg þungt kasthjól
- Sterkbyggð grind – 120kg hámarksþyngd notanda
- Mælaborð sýnir helstu upplýsingar
- 16 mótstöðustillingar
- 10 mismunandi æfingakerfi
- Hægt að stilla hnakk upp og niður
- Hjól á grunni hjólsins gerir flutning auðveldan
Á lager
Vilt þú bæta við?
FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI
- Heimsending með TVG Xpress: 2.995 kr
- Sent á pósthús: 2.495 kr
- Sækja í verslun: Frítt
BT20 þrekhjólið frá FitCo er lítið og nett æfingahjól sem einfalt er í notkun. Hjólið byggir á segulmótstöðu sem þýðir að það er afar hljóðlátt og viðhaldsfrítt. Hjólið er búið 5kg kasthjóli sem skilar mótstöðu sem er létt og upp í millistíf. Grindin í hjólinu er sterk en hámarksþyngd notanda er 120kg.
Mælaborðið á hjólinu er einfalt og stílhreint en búið lykil æfingamöguleikum. Mælaborðið sýnir hraða, tíma, vegalengd o.s.frv. Og er einnig stjórnborðið fyrir æfingakerfi og mótstöðustillingarnar. Þú getur flakkað á milli 16 mótstöðustillinga og valið á milli 10 mismunandi æfingakerfa.
Hnakkinn á hjólinu getur þú fært upp og niður. Stýrið á hjólinu er stillanlegt en þú getur hallað því nær/fjær þér. Á grunni hjólsins eru svo hjól sem að gera þér auðvelt fyrir að færa það í næsta herbergi.
BT20 þrekhjólið er frábært fyrir þá sem vilja lítið og nett æfingahjól til að nota heima fyrir.
Helstu mál o.fl.
- Mótstaða: Segulbremsa
- Kasthjól: 5kg
- Lengd sveifu: 17cm
- Skjár sýnir: Tíma, vegalengd, hraða, kaloríur og púls.
- Æfingakerfi: 10
- Mótstöðustig: 16
- Sætisstillingar: Upp/niður
- Púlsmælar: Í handföngum
- Þarf að tengja við rafmagn: Já
- Hámarksþyngd notanda: 120kg
- Stærð (LxBxH): 81,5cm x 40,5cm x 123,5cm
- Þyngd hjóls (N.W.): 21,4kg
- Stærð kassa (LxBxH): 77cm x 23cm x 58cm
- Þyngd kassa (G.W.): 23,4kg
OPNUNARTÍMI
- Virka daga: 10-18
- Laugardaga: 11-15
- Sunnudaga: Lokað