Life Fitness RS3 sitjandi þrekhjól

494.995 kr.574.995 kr.

  • Sterkt og stöðugt sitjandi þrekhjól í fullri stærð
  • Bil milli sætis og stýris gerir aðgang að sæti greiðann
  • Innbyggður rafall sér hjólinu fyrir rafmagni (engin snúra)
  • Auðvelt er að stilla sæti fram/aftur
  • Premium sæti og sætisbak
  • Segulmótstaða er hljóðlát og viðhaldsfrí
  • 20 mótstöðustig og val um tvö mælaborð
  • 182kg hámarksþyngd notanda
  • Lífstíðarábyrgð á grind
Vilt þú bæta við?
1 × Motta undir hlaupabretti

Á lager

9.995 kr.
GO
GO
Track Connect
Track Connect

RS3 þrekhjólin eru sitjandi þrekhjól sem eru hönnuð með þægindi, endingu og útlit í huga. Grunnur hjólsins er þannig að opið er á milli sætis og stýris. Þetta bil gerir aðgang að sætinu góðan sem gerir hjólið frábært fyrir þá sem eru t.d. Að berjast við hnémeiðsli. Sæti og sætisbak í RS3 eru úr premium línunni frá Life Fitness sem gerir þau enn þægilegri en þú átt að venjast.

Grunnurinn er gríðarlega sterkur en hámarksþyngd notanda er 182kg og á honum er lífstíðarábyrgð. Sætið sjálft situr á sleða sem gerir þér auðvelt fyrir að færa það fram eða aftur en þú stjórnar sætinu með handfangi á grunni sætisins. Púlsmælar eru í handföngum sem auðvelt er að halda í en mælarnir senda upplýsingar í mælaborðið.

Segulmótstaða er notuð í stað núningsbremsu en segulmótstaðan gefur jafnara átak, er hljóðlát og þarfnast minna viðhalds. Innbyggður rafall leyfir þér að sleppa snúrunni og knúa áfram mælaborðið með því að hjóla. Um tvö mælaborð er að velja, GO og Track Connect. Þú getur lesið þér til um mælaborðin með því að smella á “GO” eða “Track Connect” flipana. Með hjólinu fylgir púlsskynjari.

Life Fitness æfingatækin eru af slíkum gæðum að þú getur aðeins vænst þess besta.

Helstu mál o.fl.

  • Stilli-möguleikar á sæti: 13
  • Glasahaldarar: 1
  • Innbyggður aukahluta haldari: Nei
  • Pedalar: Standard pedalar með góðum gripfleti og strappa
  • Styrktarstig mótstöðu: 20
  • Sæti: Deluxe stillanlegt og bólstrað sæti með “mesh” efni í baki
  • Hjól á framenda: Já
  • Handföng: Handföng á hliðum og deluxe handgrip að framan
  • Pedala strappar: Já
  • Opinn miðstokkur: Já
  • Ábyrgð: lífstíðarábyrgð á ramma, 5 ára ábyrgð á pörtum, 3 ára ábyrgð á mælaborði
  • Stærð (Lengd x Breidd x Hæð): 164cm x 69cm x 131cm
  • Þyngd: 70kg
  • Hámarksþyngd notanda: 182kg