Cardiostrong BX60 þrekhjól
159.995 kr.
- Afar vandað og stöðugt þrekhjól frá Cardiostrong
- Vinsælasta hjólið í línunni þeirra
- Hljóðlát og viðhaldsfrí segulmótstaða
- Tvískiptur grunnur gerir þér auðvelt að setjast á hnakkinn
- Þungt kasthjól (9kg) tryggir jafna mótstöðu
- Sterk grind – hámarksþyngd notanda 136kg
- 16 mótstöðustillingar
- 19 mismunandi æfingakerfi
- Hægt að stilla hnakk fram/aftur og upp/niður
- Hjól á grunni hjólsins gerir flutning auðveldan
FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI
- Heimsending með TVG Xpress: 2.995 kr
- Sent á pósthús: 2.495 kr
- Sækja í verslun: Frítt
BX60 þrekhjólið er það vinsælasta í Cardiostrong línunni. Hjólið er einstaklega stöðugt, sterkbyggt og frágangur til fyrirmyndar. Grunnurinn í hjólinu er tvískiptur svo afar auðvelt er að setjast á hnakkinn (frábært fyrir þá sem eru að jafna sig eftir meiðsli). Hjólið byggir á segulmótstöðu (líkt og önnur hjól frá Cardiostrong) sem að þýðir að það er afar hljóðlátt og viðhaldsfrítt. Þungt kasthjól gerir það að verkum að snúningurinn í hjólinu er mjúkur og jafn, sama hversu mikla mótstöðu þú ferð í. Þar sem að grindin í hjólinu er afar sterkbyggð þá er hámarksþyngd notanda 136kg.
Mælaborðið á hjólinu er með stórum og skýrum skjá en engu að síður er það afar einfalt í notkun. Mælaborðið var hannað með það í huga að hver sem er gæti lært á það án vandræða og skrunhjól fyrir því miðju virkar sem mótstöðustilling. Mælaborðið býður upp á 19 mismunandi æfingakerfi og þú getur svo flakkað á milli 16 mótstöðustiga.
Þú átt að geta fundið réttu stillingu fyrir þig á hjólinu en sæti er hægt að færa bæði fram/aftur sem og upp/niður. Stýrið er ekki hægt að stilla en það er hannað þannig að nóg er af mismunandi leiðum til þess að halda í það. Á grunni hjólsins eru svo hjól sem að gera þér auðvelt fyrir að færa það í næsta herbergi.
BX60 þrekhjólið hentar þeim sem að vilja stöðugt og vandað þrekhjól með einföldu mælaborði. Tvískipti grunnurinn gerir það svo að verkum að þeir sem eru að jafna sig eftir meiðsli eða eiga erfitt með ákveðnar hreyfingar get notað hjólið án vandræða.
Helstu mál o.fl.
- Mótstaða: Segulbremsa
- Segulbremsa: 10-350 wött
- Kasthjól: 9kg
- Gírhlutfall: 1:7
- Lengd sveifu: 17cm
- Skjár sýnir: Tíma, vegalengd, hraða, wött, snúningshraða, kaloríur, púls (ef þú tengir við púlsmæli)
- Æfingakerfi: 19 í heild, þar af 1 stillanlegt og 4 púlsstýrð
- Mótstöðustig: 16
- Sætisstillingar: Fram/aftur & upp/niður
- Púlsmælar: Í handföngum
- Þarf að tengja við rafmagn: Já
- Hámarksþyngd notanda: 136kg
- Stærð (LxBxH): 109cm x 55cm x 134cm
Life Fitness E1 þrekþjálfi
469.995 kr. – 549.995 kr.Life Fitness F3 hlaupabretti
529.995 kr. – 609.995 kr.Life Fitness T5 hlaupabretti
804.995 kr. – 884.995 kr.WaterRower snjalltækjaarmur
14.995 kr.OPNUNARTÍMI
- Virka daga: 10-18
- Laugardaga: 11-15
- Sunnudaga: Lokað
- 20. des: 10-19
- 21. des: 11-18
- 22. des: 12-16
- 23. des: 10-20
- 24. des: 10-12