FitCo BT30 Þrekhjól

64.995 kr.

  • Flott þrekhjól frá FitCo
  • Hljóðlát og viðhaldsfrí segulmótstaða
  • 6kg kasthjól
  • Sterk grind – hámarksþyngd notanda 130kg
  • Mælaborð sýnir helstu upplýsingar
  • 16 mótstöðustillingar
  • 12 mismunandi æfingakerfi
  • Hægt að stilla hnakk fram/aftur og upp/niður
  • Hjól á grunni hjólsins gerir flutning auðveldan

Á lager

Vilt þú bæta við?
6.000 kr.
1 × Motta undir þrekhjól

Á lager

4.995 kr.

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI

BT30 þrekhjólið frá FitCo er vandað æfingahjól sem einfalt er í notkun. Hjólið byggir á segulmótstöðu sem þýðir að það er afar hljóðlátt og viðhaldsfrítt. 6kg kasthjól gerir það að verkum að snúningurinn í hjólinu er mjúkur og jafn. Grindin í hjólinu er sterk en hámarksþyngd notanda er 130kg.

Mælaborðið á hjólinu er einfalt og stílhreint en búið öllum lykil æfingamöguleikum. Mælaborðið sýnir hraða, tíma, vegalengd o.s.frv. Og er einnig stjórnborðið fyrir æfingakerfi og mótstöðustillingarnar. Þú getur flakkað á milli 16 mótstöðustillinga og valið á milli 12 mismunandi æfingakerfa.

Það eiga allir að geta fundið stellingu sem hentar vel á hjólinu en sæti er hægt að færa bæði fram/aftur sem og upp/niður. Stýrið á hjólinu er fast en það er nægilega stórt svo að þú getur haldið í það á nokkra vegu. Á grunni hjólsins eru svo hjól sem að gera þér auðvelt fyrir að færa það í næsta herbergi.

BT30 þrekhjólið er frábært fyrir þá sem vilja stöðugt hjól sem hægt er að setja á ágætis mótstöðu.

Helstu mál o.fl.

  • Mótstaða: Segulbremsa
  • Kasthjól: 6kg
  • Lengd sveifu: 17cm
  • Skjár sýnir: Tíma, vegalengd, hraða, snúningshraða, kaloríur og púls.
  • Æfingakerfi: 12
  • Mótstöðustig: 16
  • Sætisstillingar: Fram/aftur & upp/niður
  • Púlsmælar: Í handföngum
  • Þarf að tengja við rafmagn: Já
  • Hámarksþyngd notanda: 130kg
  • Stærð (LxBxH): 76,5cm x 32,5cm x 131,5cm
  • Þyngd hjóls (N.W.): 26,2kg
  • Stærð kassa (LxBxH): 87cm x 25,5cm x 63cm
  • Þyngd kassa (G.W.): 29,1kg