SiS GO Energy orkugel +Electrolytes

Frá 295 kr.

  • 22g af kolvetnum í hverju geli
  • Isotonic blanda gefur hraða og jafna orku
  • Gelið er vatnsmikið svo ekki þarf að skola því niður með vatni
  • Gott í maga
  • Viðbættt steinefni og sölt
Lemon & Mint
Lemon & Mint
Raspberry
Raspberry
Salted Caramel
Salted Caramel

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | LÍTILL PAKKI

Frí sending ef þú pantar vörur í þessum flokk fyrir meira en 10.000 kr.

GO Energy +Electrolytes gelin frá SiS eru hönnuð með það í huga að auðvelt sé að drekka þau og að þau fari vel í maga. Gelin eru vatnsmikil (60ml) og því þarf ekki að drekka vatn með þeim. Nú er búið að bæta við steinefnum og söltum í gelin til þess að tryggja jafnvægi við vökva í líkamanum.

Afhverju ætti ég að taka GO Energy +Electrolytes gel?

Kolvetni eru aðal orkuforði þinn þegar þú æfir/keppir og ein af aðalástæðum fyrir þreytu er kolvetnaleysi í líkamanum. Go Energy gelin eru kolvetnarík (orkurík) og því hægja þau á þreytu og bæta afköst til muna. Gelin eru afar auðveld inntöku og henta vel í t.d. lengri hlaup og hjólreiðatúra eða einfaldlega í hálfleik í fótboltaleik. Steinefnin og söltin koma svo í veg fyrir krampa og aðra kvilla sem ofþornun getur valdið.

Steinefni og sölt

Electrolyte gelin frá SiS innihalda steinefni og sölt (sodium, potassium, magnesium) sem líkaminn missir út með svita. Mjög mikilvægt er að fylla á steinefna og salt birgðir til þess að koma í veg fyrir ofþornun og fylgikvilla ofþornunar (krampa, styrktartap o.fl.). Gelið inniheldur 118mg sodium, 9,5mg potassium og 1,5mg magnesíum, þessi hlutföll eiga að hjálpa líkamanum að viðhalda vökvajafnvægi (sodium 30 mmol/L).

Svona mælum við með því að þú notir gelin:

Gott er að taka eitt gel á hverjum klukkutíma, af álag er mikið er gott að taka líka isotoni gel/orkustöng eða drekka með orkudrykk. Vegna þess hve mikið af steinefnum og söltum eru í hverju geli mælum við ekki með því að taka fleiri en 1 svona gel á hverjum klukkutíma, frekar að taka venjulegu “GO Isotonic” orkugelin aukalega.