Hreysti Bumper lóðaplötur

Frá 4.995 kr.

  • Vandaðar bumper lóðaplötur
  • Þola endurtekin “dropp”
  • Miðja úr ryðfríu stáli
  • Vikmörk þyngdar +/-1%
  • 89-93 shore A þéttleiki
  • Passa á ólympískar stangir (50mm gat)
  • Henta vel í jafnt heimahús sem æfingastöðvar
  • Smelltu hér til að skoða lóðaplötusett
  • Ath. plöturnar eru seldar í stykkjatali
5kg
5kg
10kg
10kg
15kg
15kg
20kg
20kg

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | LÍTILL PAKKI

Frí sending ef þú pantar vörur í þessum flokk fyrir meira en 10.000 kr.

Hreysti bumperarnir eru endingargóðar lóðaplötur sem að henta í almennar sem og ólympískar lyftingar en bumperar hafa það fram yfir aðrar plötur að þola endurtekin dropp. Sama hvort þú ert að taka snörun, bekkpressu eða hnébeygju þá eru bumperarnir góður kostur. Bumperarnir passa á ólympískar stangir en stangir sem falla undir þann flokk hafa enda sem eru 50mm að þvermáli.

Bumperarnir okkar eru framleiddir eftir ströngum gæðastöðlum sem að tryggja vikmörk þyngdar upp á aðeins +/-1%. Bumperarnir eru einnig endingarprófaðir en þeir eiga að þola yfir 10.000 “dropp” úr axlarhæð án nokkura vandkvæða. Þessari endingu er náð fram með gúmmíþéttleika upp á 89-93 Shore A, minni plöturnar eru þéttari en stærri plöturnar svo að þær endist líka vel. Gúmmíið er pressað í heit form með 300 tonna þrýsting og útkoman er því alltaf slétt og flott yfirborð. Miðjan í plötunum er úr ryðfríu stáli sem að endist mun betur en brass miðjurnar sem eru í sumum bumperum

Þyngd Þvermál (hæð) Þykkt
5kg 45cm 2,54cm
10kg 45cm 4,45cm
15kg 45cm 6,66cm
20kg 45cm 7,5cm