Batterí steinefna og salt freyðitöflur Kassi

8.955 kr.

  • Freyðitöflur sem fylla á steinefni og salt birgðir
  • Minnka líkur á krömpum
  • Geta komið í veg fyrir ofþornun
  • Örugg vara fyrir íþróttafólk
  • Kassi með 12 staukum (20 freyðitöflur í hverjum stauk)
  • Frískandi sítrónu og lime bragð

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | LÍTILL PAKKI

Frí sending ef þú pantar vörur í þessum flokk fyrir meira en 10.000 kr.

Batterí steinefna og salt freyðitöflurnar eru hannaðar til þess að fylla hratt og örugglega á steinefna og salt birgðir líkamans. Freyðitöflurnar innihalda lykil steinefni og sölt án þess að innihalda mikið af umfram kaloríur. Það að töflurnar séu kaloríulitlar gerir þér auðvelt fyrir að bæta inn steinefnum og söltum án þess að setja mataræði úr skorðum.

Afhverju á ég að taka Batterí freyðitöflurnar?

Við æfingar svitnum við um ca 1 lítra á klukkutíma eftir álagi. Þessi sviti er fullur af steinefnum og söltum sem koma í veg fyrir krampa og tryggja það að vöðvarnir vinni eins og þeir eiga að gera. Þegar það er ekki bætt nógu hratt á þessar vatns, steinefna og salt birgðir þá er hætta á að líkaminn ofþorni.

Ofþornun er ástand sem enginn vill lenda í en þá hækkar líkamshiti, hjartsláttur eykst, kolvetnabirgðir tæmast fyrr og okkur líður eins og æfingin/keppnin sé erfiðari. Í raun og veru þá þarf líkaminn að vinna meira í ofþornunar ástandi til þess að ná sömu afköstum og í venjulegu ástandi.

Við mælum með því að nota Batterí töflurnar svona:

Ef að þú æfir mikið, ert í miklum hita eða líkamlegri vinnu þá getur verið sniðugt að taka eina og eina töflu yfir vikuna. Til þess að hlaða upp fyrir keppni eða æfingu er gott að drekka u.þ.b. 500ml (1 tafla) 3-4 tímum fyrir og svo 250-500ml um 2 tímum fyrir. Á æfingu eða í keppni er gott að drekka u.þ.b. 500ml af vökva á klukkutíma en þá er hægt að drekka batterí steinefna og salt blöndu eða Batterí orkublöndu (sem inniheldur einnig steinefni og sölt).

Ath. Töflurnar freyða og því er sniðugt að hafa brúsann opinn á meðan taflan leysist upp – ef brúsinn er lokaður þá myndast þrýstingur sem að getur í sumum tilfellum verið nægilega mikill til þess að opna brúsann.