Zinc & Magnesium hylki

Frá 2.299 kr.

  • ZMA blanda frá Myprotein
  • Inniheldur Sink, Magnesíum og B6 vítamín
  • Virkar best þegar blandan er tekin fyrir svefn
90 hylki
90 hylki
270 hylki
270 hylki

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | LÍTILL PAKKI

Frí sending ef þú pantar vörur í þessum flokk fyrir meira en 10.000 kr.

 Zinc & Magnesium er blanda af steinefnunum zink og magnesium, B6 vítamíni ásamt kopar.

Magnesíum hjálpar líkamanum að koma jafnvægi á steinefna og salt forða ásamt því að hafa jákvæð áhrif á bein og tennur. Magnesíum hjálpar einnig líkamanum að viðhalda eðlilegri virkni taugakerfis og heila og hjálpar í baráttunni gegn þreytu.

Zink styður við ónæmiskerfi, efnaskipti og sjón ásamt því að hafa jákvæð áhrif á húð, hár, neglur og bein. B6 vítamíni er svo bætt við en það er þekkt fyrir jákvæð áhrif á orkuframleiðslu ásamt því að stuðla að eðlilegri virkni ónæmiskerfis. 

Kopar er snefilefni sem hefur meðal annars andoxunarvirkni í frumum.

Þessa blöndu er frábært að taka fyrir svefn. Við mælum með því að karlmenn taki 3 töflur 30-60 mínútum fyrir svefn en konur taki 2 töflur. Fyrir hámarks virkni er best að forðast mjólkurvörur eða aðrar vörur sem innihalda kalsíum rétt fyrir svefn.