Smurefni fyrir hlaupabretti
3.999 kr.
- Sílíkon smurefni fyrir hlaupabretti
- Tryggir að brettið renni ljúft næstu 200km eða 3 mánuði (hvort sem kemur fyrst)
- 200ml brúsi með stút sem gerir smurningu einfalda
Á lager
FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | LÍTILL PAKKI
Frí sending ef þú pantar vörur í þessum flokk fyrir meira en 15.000 kr.
- Heimsending með TVG Xpress: 995 kr.
- Sent á pósthús: 795 kr.
- Sækja í verslun: Frítt
Regluleg smurning á hlaupabrettum lengir líftíma og minnkar hávaða við notkun. Þetta smurefni kemur í 200ml brúsa með sérstökum stút sem gerir þér auðvelt að gluða sílíkoninu undir beltið (á plötuna). Hver brúsi inniheldur 200ml af sílíkoni en það endist í um 15-20 smurningar.
Til þess að smyrja brettið þá notar þú stútinn sem fylgir með brúsanum – setur stútinn undir beltið og gluðar ágætis röndum á fremri hluta plötunnar. Eftir þetta er gott að setja brettið af stað á ca. 3 km/h og ganga hænuskref eftir öllu brettinu til að dreifa sem best úr smurningunni.
ATH. Langflest hlaupabretti sem hönnuð eru til heimanotkunar notast við sílíkon sem smurefni. Einstaka bretti (og flest professional bretti) notast við vax sem smurefni og þau bretti má alls ekki setja sílíkon á. Því er alltaf gott að skoða bæklinginn sem fylgir með brettinu og ganga úr skugga um að brettið notist við sílíkon sem smurefni.
Life Fitness tækjamotta
12.995 kr. – 17.795 kr.WaterRower snjalltækjaarmur
14.995 kr.OPNUNARTÍMI
- Virka daga: 10-18
- Laugardaga: 11-15
- Sunnudaga: Lokað