SiS Beta Fuel +Nootropics orkugel

449 kr.

  • Afar orkuríkt orkugel
  • Næstum því 2x meira af kolvetnum en í venjulegu SiS geli
  • Úthugsuð kolvetnablanda hámarkar upptöku
  • Náttúruleg bragðefni
  • Fæst í frískandi brögðum
  • Með viðbættu koffíni, theanine og fleira
Lemon Lime
Lemon Lime
Apple
Apple

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | LÍTILL PAKKI

Frí sending ef þú pantar vörur í þessum flokk fyrir meira en 15.000 kr.

+Nootropics útgáfan er með auka hráefnum sem að bætt er við með því markmiði að örva og hvetja. Þessi hráefni eru meðal annars koffín, L-Theanine og Cognizin. Ath. að þessi útgáfa inniheldur verulegt koffínmagn (200mg per gel).

Beta fuel orkugelið frá Science in Sport er hannað með það í huga að gefa hámarks orku án þess að fara illa í maga. Beta fuel gelið inniheldur nánast 2x meira af kolvetnum en upprunalega orkugelið frá SiS. Kolvetnablandan í gelinu gerir líkamanum kleift að nýta þessa orku mun betur en hefðbundin gel sem að eru aðeins með eina gerð af kolvetnum. Þetta þýðir að þú getur innbyrt meiri orku sem að líkaminn getur raunverulega notað þökk sé Beta fuel kolvetnablöndunni.

Kolvetnablanda er 1:0.8 hlutfall af maltodextrin og frúktósa. Í beta fuel gelinu eru engin litarefni og bragðefni eru náttúruleg. Líkt og aðrar vörur frá SiS þá er beta fuel gelið með Informed sports merkingu sem þýðir að það sé prófað fyrir ólöglegum efnum.