Hreysti Trölla Lyftingastandur

49.995 kr.

  • Frístandandi lyftingastandur úr Trölla línunni
  • 50x80mm prófílar, 3mm þykkt stál
  • Laser skorin göt fyrir stangarhaldara
  • Minna bil milli gata á bekkpressusvæðinu
  • Commercial grade dufthúðun
  • Stangarhaldarar fylgja með
  • Þolir að hámarki 450kg
  • Hentar jafnt í heimahús sem æfingastöðvar
  • Fjöldi aukahluta í boði
  • Smelltu hér til að skoða lyftingasett

Á lager

Vilt þú bæta við?
16.995 kr.
11.995 kr.

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI

Lyftingastandurinn í Trölla línunni okkar er nettur og sniðugur standur sem þolir gríðarlega notkun. Standurinn er hannaður til þess að vera mjög stöðugur án þess að taka mikið gólfpláss. Hvort sem að þú notar standinn sem hryggstykkið í heimaaðstöðunni eða sem færanlega einingu í æfingastöðinni þá mun hann ekki valda vonbrigðum.

Sterkbyggður
Trölla standurinn er virkilega sterkbyggður en stálprófílarnir eru 50x80mm og stálið sjálft er 3mm þykkt, allar suður eru framkvæmdar af vélmennum sem að tryggja gæði og öryggi. Standurinn hefur 122cm djúpann og 123cm breiðan grunn sem tryggir að hann sé stöðugur þó að þú hlaðir vel á hann. Á grunninum eru fjögur göt sem hægt er að nota til þess að festa standinn við gólfið ef þú vilt að hann sé eins stöðugur og hægt er að hafa hann.

Nákvæmar hæðarstillingar
Götin fyrir stangarhaldarana eru laser skorin svo að bæði götin sjálf og hæð þeirra er alltaf rétt. Bilið milli gata er um 5cm nema í þeirri hæð sem er notuð í bekkpressu en götin þar eru með 2,5cm millibili svo að þú finnir rétta stillingu fyrir þig. Stangarhaldarar sem eru verndaðir með UHMW plasti fylgja með (UHMW plastið tryggir að fínskorning á lyftingastönginni skemmist ekki).

Fjöldi aukahluta í boði
Þessi lyftingastandur er hluti af Trölla línunni okkar og því passa aukahlutirnir sem merktir eru tröllalínunni á standinn.

Helstu mál o.fl.

  • Hæð: 185cm
  • Breidd: 123cm
  • Dýpt: 122cm
  • Stál prófílar: 50x80mm
  • Þykkt stáls: 3mm
  • Þyngd: 54kg
  • Hámarksþyngd: 450kg