Nett samanbrjótanlegt hlaupabretti sem hannað er fyrir heimahús
Nær að hámarki 18km/h
Nær að hámarki 15% halla
Stórt hlaupasvæði (130x46cm)
Einfalt fjöðrunarkerfi minnkar álag á liðamót
Mælaborð sýnir lykilupplýsingar
Bluetooth tenging við snjalltæki í gegnum FitShow appið – Hægt að tengja Zwift, Kinomap, Runna o.fl.
2,5 hestafla mótor
Hámarksþyngd notanda er 120kg
Þetta bretti þarf að smyrja reglulega með sílíkoni, sjá leiðbeiningar í flipa hér fyrir neðan
RT30 hlaupabrettið frá FitCo er nett bretti sem hannað er fyrir heimahús. Brettið hentar þeim sem vilja taka frískandi æfingar heima fyrir en brettið nær að hámarki 18km/h. Halla mótorinn í brettinu er vandaður en hann nær allt að 15% halla sem að er frábær kostur fyrir þá sem vilja minnka hraðann og auka álag með hækkun. Brettið er samanbrjótanlegt en það er afar auðvelt að leggja það upp og trylla því svo um á hjólum sem eru á grunni þess.
Hlaupasvæðið á brettinu er 130x46cm sem hentar flestum, leggjalöngum hentar þó betur bretti með lengra hlaupasvæði. Brettið er búið einföldu fjöðrunarkerfi sem að minnkar álag á liðamót. Brettið er hannað til þess að þola að hámarki 120kg notanda.
Mælaborðið á brettinu sýnir allar helstu lykilupplýsingar (tíma, hraða, halla, vegalengd, skref, kaloríur og púls) og býður upp á 11 æfingakerfi sem hægt er að velja á milli. Uppstillingin á upplýsingum er ansi góð en hraði og halli eru alveg sér á báti beggja vegna við upplýsingaskjáinn svo að það er alltaf auðvelt að sjá þessar lykilbreytur.
Prófað af starfsfólki Hreysti: Brettið virkar með Zwift, Kinomap, Runna og Fitshow. Ert þú að nota annað app? Heyrðu í okkur og við getum prófað hvort það virki.
Tækniupplýsingar:
Mótor: 2,5 hestöfl DC
Hlaupasvæði: 130x46cm
Hraði: 0,8-18km/h, 0,1km/h þrep
Halli: 0-15% rafstýrður hallamótor
Mælaborð sýnir: Tíma, hraða, halla, vegalengd, skref, kaloríur og púls
Skjár: LCD
Æfingakerfi: 11
Púlsmæling: –
Fjöðrunarkerfi: Já, fjaðrandi punktar
Hámarksþyngd notanda: 120kg
Stærð í notkun (LxBxH): 162cm x 79cm x 145cm
Stærð kassa (LxBxH): 178cm x 81,5cm x 35,5cm
Þyngd brettis: 70kg
Þyngd í kassa: 80kg
Ábyrgð: 2ár


