Cardiostrong BX30 þrekhjól
109.995 kr.
- Einfalt en öflugt þrekhjól frá Cardiostrong
- Hljóðlát og viðhaldsfrí segulmótstaða
- Þungt kasthjól (9kg) tryggir jafna mótstöðu
- Sterk grind – hámarksþyngd notanda 130kg
- 32 mótstöðustillingar
- 19 mismunandi æfingakerfi
- Hægt að stilla hnakk fram/aftur og upp/niður
- Hjól á grunni hjólsins gerir flutning auðveldan
Á lager
FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI
- Heimsending með TVG Xpress: 2.995 kr
- Sent á pósthús: 2.495 kr
- Sækja í verslun: Frítt
BX30 þrekhjólið frá Cardiostrong er eitt af þeirra vinsælustu þrekhjólum enda er það á góðum verðpunkti miðað við hversu öflugt það er. Hjólið byggir á segulmótstöðu (líkt og önnur hjól frá Cardiostrong) sem að þýðir að það er afar hljóðlátt og viðhaldsfrítt. Þungt kasthjól gerir það að verkum að snúningurinn í hjólinu er mjúkur og jafn, sama hversu mikla mótstöðu þú ferð í. Grindin í hjólinu er sterk en hámarksþyngd notanda er 130kg.
Mælaborðið á hjólinu er einfalt og stílhreint en búið öllum lykil æfingamöguleikum. Mælaborðið sýnir hraða, tíma, vegalengd o.s.frv. Og er einnig stjórnborðið fyrir æfingakerfi og mótstöðustillingarnar. Þú getur flakkað á milli 32 mótstöðustillinga og valið á milli 19 mismunandi æfingakerfa, þar af er eitt stillanlegt kerfi og 4 púlsstýrð kerfi.
Þú átt að geta fundið réttu stillingu fyrir þig á hjólinu en sæti er hægt að færa bæði fram/aftur sem og upp/niður. Stýrið er hægt að tylla að þér eða frá með því að losa um festinguna á því. Á grunni hjólsins eru svo hjól sem að gera þér auðvelt fyrir að færa það í næsta herbergi.
BX30 þrekhjólið er frábært fyrir þá sem vilja einfalt en öflugt þrekhjól sem hægt er að taka kröftuga æfingu á.
Helstu mál o.fl.
- Mótstaða: Segulbremsa
- Segulbremsa: 10-350 wött
- Kasthjól: 9kg
- Gírhlutfall: 1:8,25
- Lengd sveifu: 17cm
- Skjár sýnir: Tíma, vegalengd, hraða, wött, snúningshraða, kaloríur, púls (ef þú tengir við púlsmæli)
- Æfingakerfi: 19 í heild, þar af 1 stillanlegt og 4 púlsstýrð
- Mótstöðustig: 32
- Sætisstillingar: Fram/aftur & upp/niður
- Púlsmælar: Í handföngum
- Þarf að tengja við rafmagn: Já
- Hámarksþyngd notanda: 130kg
- Stærð (LxBxH): 90cm x 57cm x 140cm
Cardiostrong BX60 þrekhjól
159.995 kr.Life Fitness C3 þrekhjól
409.995 kr. – 489.995 kr.Life Fitness E3 þrekþjálfi
629.995 kr. – 709.995 kr.Life Fitness RS3 sitjandi þrekhjól
494.995 kr. – 574.995 kr.Life Fitness T3 hlaupabretti
529.995 kr. – 609.995 kr.WaterRower snjalltækjaarmur
14.995 kr.OPNUNARTÍMI
- Virka daga: 10-18
- Laugardaga: 11-15
- Sunnudaga: Lokað
- 20. des: 10-19
- 21. des: 11-18
- 22. des: 12-16
- 23. des: 10-20
- 24. des: 10-12