Hreysti
Hreysti
Hreysti
568-1717
[email protected]

Verslun

Skeifan 19, 108 Reykjavík

Vöruhús

Sundagarðar 6, 104 Reykjavík

Opnunartími

  • Virka daga: 10–18
  • Laugardaga: 11–15
  • Sunnudaga: Lokað

Vöruhús

  • Virka daga: 9–12 og 13–17

Upplýsingar

  • Skilmálar
  • Greiðsluleiðir

Þjónusta

  • Hafa samband
  • Afhendingarmátar
  • Verkstæði
  • Samsetningarþjónusta

Hreysti

  • Um okkur
  • Hreysti línan
  • Okkar verkefni

Skráðu þig á póstlistann

Fáðu tilboð, nýjar vörur og fréttir beint í pósthólfið.

© 2026 Hreysti ehf

VisaMastercardAmerican ExpressMaestro
ForsíðaFæðubótarefniVirkni Bætiefnablanda

Virkni Bætiefnablanda

Hreysti
  • Úthugsuð blanda virkra innihaldsefna
  • Getur aukið sprengikraft
  • Getur stuðlað að aukinni afkastagetu
  • Getur aukið úthald
  • Kreatín, beta alanín, D-vítamín, steinefni & sölt
  • Best að neyta daglega (óháð tíma)
  • 330g í dollunni (30 skammtar)
  • Hver einasta framleiðslulota er prófuð fyrir ólöglegum efnum
Bragð: Sítrónu & Lime
4.999 kr.
FjöldiAfslátturVerð / stk
1 stk–4.999 kr.
2 stk−10%4.499 kr.
3 stk−15%4.249 kr.
4+ stk−20%3.999 kr.

Allar vörur úr fæðurbótarefna flokknum telja saman

Þú getur blandað saman vörum úr fæðurbótarefna flokknum Skoða vörur

1

Hvað er virkni?

Virkni er glæný vara í Hreysti fæðubótarlínunni sem er úthugsuð blanda af innihaldsefnum sem hafa sýnt fram á frammistöðuaukandi áhrif. Innihaldsefnin eru meðal annars Kreatín og beta alanín í fullum skömmtum, D-vítamín og steinefni & sölt. Varan er hugsuð fyrir aðila sem æfa mikið, af mikilli ákefð og vilja ná meiri árangri í keppni/æfingu.

Hvernig er best að nota virkni?

Bæði kreatín og beta-alanín eru efni sem virka best þegar þeirra er neytt daglega. Því er ráðlagt að nota einn til tvo skammta af virkni á dag til að tryggja hleðslu beggja efnanna. Rannsóknir hafa sýnt að það tekur líkamann í kringum 4 vikur til þess að hækka magn efnanna svo máli skiptir.

ATH: notkun Beta-alaníns getur valdið kláða í húð, og þá sérstaklega í andliti (e. paraesthesia). Þessi kláði er þó alls ekki hættulegur, en getur valdið fólki óþægindum. Þeir sem vilja minnka kláðann er ráðlagt að nota hálfa skeið af virkni tvisvar til fjórum sinnum á dag.

Hvað gera efnin í virkni?

Kreatín er efni sem líkaminn myndar úr þremur amínósýrum: arginíni, glýsíni og meþíoníni. Kreatíninu er svo umbreytt yfir í form kreatínfosfats (e. phospocreatine eða PCr) sem sér líkamanum fyrir hraðri orku í mikilli ákefð. Í hreyfingum við hámarks átök, eins og í spretthlaupi, stökki og lyftingum sér PCr vöðvunum fyrir mestum hluta orkunnar. Kreatín getur einnig aukið fitufrían vöðvamassa og hraðað endurheimt á milli endurtekinna átaka.

Þar að auki hafa rannsóknir leitt í ljós að virkni kreatíns nái líklega lengra en aðeins til að auka afköst í íþróttum. Heilinn og miðtaugakerfið nota kreatín m.a. til að skaffa sér orku, og þá sérstaklega í aðstæðum sem reyna verulega á vitræna virkni og gagnrýna hugsun. Þá hafa rannsóknir einnig sýnt fram á andoxunarvirkni og bólgueyðandi áhrif kreatíns.

Þrátt fyrir að líkaminn búi til kreatín og kreatín sé að finna í fæðunni (aðallega í kjöti) þá er það magn takmarkað. Til þess að innbyrða 5 grömm af kreatíni þyrftum við að borða rúmlega 1 kg af nautakjöti eða rúmlega 2 kg af kjúklingi! Með því að taka inn kreatín aukalega í formi fæðubótarefnis er hægt að auka magn kreatíns í vöðvum enn frekar. Ráðlagður dagskammtur af kreatíni er á bilinu 3 – 5 grömm.

Beta-alanín er amínósýra, sem ásamt L-histidine, myndar efnið carnosine, sem spilar lykilhlutverk í að vernda gegn sýrumyndun í vöðvum við mikla ákefð. Beta-alanín getur aukið afkastagetu og úthald, þá sérstaklega á æfingum eða í keppni þar sem ákefð er mikil og lengd er frá 30 sekúndum upp að 10 mínútum. Ráðlagður dagskammtur af beta-alaníni er 3.2 – 6.4 grömm.

Líkt og með kreatínið, þá fæst beta-alanín einnig úr fæðu, þá aðallega kjöti. Sömu sögu má þó segja varðandi magnið, en dagleg meðalneysla er í kringum 0.4 – 0.8 grömm; töluvert frá því magni sem þarf til að bæta frammistöðu!

Auk kreatíns og beta-alaníns inniheldur virkni einnig D-vítamín, sem spilar mörg lykilhlutverk í líkamanum sem geta haft áhrif á frammistöðu og afkastagetu. Þar má nefna beinheilsu, vöðvavirkni og -viðhald, sem og virkni ónæmiskerfisins.

Virkni inniheldur einnig ýmis sölt og steinefni sem sinna ýmsum miklvægum hlutverkum.

Natríum: hjálpar við að halda blóðmagni og osmótískum þrýstingi í jafnvægi, hjálpar til við miðlun taugaboða og vöðvasamdrætti.

Kalíum: hjálpar líkamsfrumunum að viðhalda vökvajafnvægi, styður við eðlilegan blóðþrýsting og hjálpar til við vöðvasamdrætti.

Magnesíum: spilar mikilvægt hlutverk í orkuefnaskiptum

Kalsíum: spilar lykilhlutverk í vöðvasamdráttum og beinheilsu.

Textahöfundur:


Hefur þú áhuga á að fá næringarleiðsögn frá sérfræðingi? Þá getur þú sent línu á [email protected]

Tengdar vörur

Uppselt
deep rest and stress relief.jpg

Swanson Deep Rest & Stress relief

  • 60 hylki
4.999 kr.
glucosamine.jpg

Swanson Glucosamin, Chondroitin & MSM

  • 120 töflur
7.499 kr.
omega 3.jpg

Swanson Omega 3 hylki

  • 150 hylki
3.999 kr.
-20%
H3RO Próteinstangir Kassi (12 stk.)

H3RO Próteinstangir Kassi (12 stk.)

  • Náttúruleg hráefni
7.188 kr.5.750 kr.
Peanuts_1.jpg

H3RO Próteinstangir

  • Náttúruleg hráefni
Frá599 kr.
Glutamin 1.jpg

L Glutamine

  • 300g (60 sk.)
  • |Hreint L-Glútamín
2.799 kr.
Soy 1.jpg

TPW Soy Protein

  • 2 stærðir
  • |Nokkrar bragðtegundir
Frá3.999 kr.
Platinum 1.jpg

Vegan Protein 360 Platinum

  • 2 Stærðir
  • |Nokkrar bragðtegundir
Frá5.499 kr.
Mass gainer 1.jpg

Vegan Mass Matrix

  • 2kg (10+ skt.)
  • |Súkkulaðibragð
Frá6.999 kr.
-50%
neo_flow.png

Neo Flow brúsi 450ml

  • Breitt op
  • |Nettur og þægilegur
2.999 kr.1.499 kr.