Einstök nuddrúlla sem er hönnuð til þess að rugga (rock) í staðinn fyrir að rúlla
Mismunandi fletir á rúllunni henta í mismunandi nudd
Getur náð mjög djúp með oddhvössum enda eða farið mjúkt í það með flatari fleti
Hreysti teyminu finnst þessi sérstaklega góð í hálsnudd og kálfanudd
Rúllan er 33cm löng
TRX Rocker er nuddrúlla sem er hönnuð til að rugga fram og aftur í stað þess að rúlla í langri hreyfingu. Mismunandi fletir gefa þrjú stig af nuddi, frá breiðari og mýkri snertingu til markvissari þrýstings.
Stamt yfirborðið heldur rúllunni stöðugri við notkun. Hún nýtist meðal annars við nudd á kálfum, baki og öðrum vöðvasvæðum.
• Lengd: 13 tommur, um 33 cm.
• Uppgefið hámarksálag: 350 lb, um 158,8 kg.