Beta Fuel Chew orkustangirnar eru bragðgóðar og auðmeltar stangir sem veita þér 46 grömm af kolvetnum. Stöngina er hægt að borða sem heila stöng eða skipta henni niður í 6 orkukubba sem hver inniheldur þá rúmlega 7 grömm af kolvetnum. Líkaminn getur nýtt um 80-120g af kolvetnum úr Beta fuel línunni frá SiS og því getur þú borðar allt að 3 stangir á klukkutíma til að hámarka kolvetnanýtingu – að því sögðu fara flestir blandaða leið til þess að ná þessum kolvetnaskammti .. t.d. með Beta fuel drykk, beta fuel stöng og beta fuel geli.
Nokkrir punktar frá SiS um nýju Beta fuel uppskriftina:
KOLVETNABLÖNDUN BETA FUEL
Beta Fuel notar glúkósa og frúktósa í hlutfallinu 1:0,8 í stað eldra 2:1 hlutfalls. Blandan var þróuð af SiS í samstarfi við afreksíþróttafólk og er notuð í mismunandi vörum innan Beta Fuel-línunnar.
Í umfjöllun framleiðandans um rannsóknir á blöndunni kemur fram að þetta hlutfall geti aukið nýtingu kolvetna við álag og dregið úr seddu- og ógleðitilfinningu miðað við 2:1 blöndu. Þol fyrir kolvetnum og hentugt magn eru einstaklingsbundin.