Pillar Ultra B Active er B-vítamínblanda með virkum formum B2-, B6- og B12-vítamína ásamt öðrum vítamínum úr B-flokknum.
Hver tafla inniheldur meðal annars 300 míkrógrömm af mekóbalamíni (B12) og 15 mg af pýridoxal-5-fosfati (B6).
Notkun fyrir fullorðna samkvæmt framleiðanda: Ein tafla á dag með mat. Í glasinu eru 60 húðaðar töflur, eða 60 skammtar.
Ekki fara yfir ráðlagðan dagskammt. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreytts mataræðis og heilbrigðs lífsstíls. Geymist þar sem ung börn ná ekki til. Ekki nota ef innsigli er rofið. Geymist við lægri hita en 25°C.