| Fjöldi | Afsláttur | Verð / stk |
|---|---|---|
| 1 stk | – | 5.999 kr. |
| 2 stk | −10% | 5.399 kr. |
| 3 stk | −15% | 5.099 kr. |
| 4+ stk | −20% | 4.799 kr. |
Allar vörur úr fæðurbótarefna flokknum telja saman
Þú getur blandað saman vörum úr fæðurbótarefna flokknum Skoða vörur
PhD Pre-Workout + Collagen með koffíni er hannað til að styðja bæði afköst í æfingum og endurheimt líkamans.
Í hverjum skammti eru 200 mg af koffíni, sem getur hjálpað til við að auka einbeitingu og orku áður en æfing hefst. Koffín er vel þekkt innihaldsefni í pre workout blöndum og getur stuðlað að betri fókus og minni þreytu tilfinningu á æfingum.
Formúlan inniheldur einnig 6 g af L-citrulline, sem er amínósýra sem oft er notuð til að styðja við blóðflæði til vöðva. Auk þess eru 5 g af kreatíni, sem getur hjálpað til við að auka afköst í stuttum og kraftmiklum æfingum eins og styrktarþjálfun eða sprettum.
Sérstaða vörunnar er að hún inniheldur líka 5 g af kollageni, sem er mikilvægt prótein í sinum, liðböndum og öðrum stoðvefjum líkamans. Kollagen er oft notað í íþróttanæringu til að styðja við liðheilsu og endurheimt.
Duftið inniheldur einnig leucine, taurine, tyrosine og B-vítamín, sem vinna saman að því að styðja við orkumyndun og afköst á æfingum. Blandaðu einum skammti í vatn og taktu um 20–30 mínútum fyrir æfingu þegar þú vilt fá meiri kraft og fókus á æfingu.