FitCo original upphífingarstöngin er vinsælasta stöngin í línunni þeirra. Stöngin byggir á á einföldu vogarafli en með því að tylla stönginni á gereftið öðrum megin og láta svo enda stangarinnar liggja við hurðarammann hinum megin helst hún uppi þegar í henni er hangið (og álagið fer á vegginn).
Stöngin passar á veggi sem eru 12-16cm að þykkt og hurðagöt sem eru 60-80 cm breið. Stöngin kemur að sjálfsögðu með öryggisfestingum sem við mælum eindregið með því að nota. Öryggisfestingarnar eru litlar og því fer lítið fyrir þeim en viðbætta öryggið, sérstaklega þegar börn eru annars vegar, er afar gott að hafa.
Upphífingarstöngin kemur ósamsett í kassa með öryggisfestingum og skrúfum fyrir öryggisfestingarnar.