ÆFÐU MEÐ HJARTANU
HRM 600 púlsmælirinn er fyrir þá sem vilja sem mestar upplýsingar úr púlsmælingum ásamt hjartsláttatíðni og hlaupagreiningu.
Sendir gögn í rauntíma yfir í samhæf tæki eða snjallforrit.
Endurhlaðanleg rafhlaða sem endist allt að 2 mánuði á einni hleðslu.
Innbyggð hlaupagreining ef mælirinn er tengdur við samhæft úr.
Hægt að taka upp activities og synca í samhæfan snjallsíma í gegnum Garmin Connect.
Þægilegur í notkun og kemur í tveimur stærðum. Strappinn má fara í þvottavél.
Endingargóður með vatnsvörn upp á 5 ATM.
TENGINGAR
Þessi púlsmælir sendir gögn í rauntíma í gegnum ANT+® eða Bluetooth®. Talar við samhæf Garmin tæki eða forrit frá þriðja aðila eins og Tacx Training.
BETRI HLAUPAGREINING
Púlsmælirinn er með innbyggðri hlaupagreiningu sem að inniheldur hraðatap í skrefi, lóðrétta hreyfingu, snertitíma við jörðu og jafnvægi (þarfnast samhæfs snjallúrs)².
UPPTAKA Á ÆFINGU
Í sumum íþróttum er ekki hægt að vera með úr – þá getur HRM 600 séð um að mæla púls, brennslu, vegalengd og meira – sendir það svo beint í Garmin Connect³.
DAGLEG HREYFING
HRM 600 mælir daglega hreyfingu eins og skref, púls, kaloríur og æfingamínútur. Allt þetta sendir mælirinn í Garmin Connect.
FJÖLHÆFUR
Ef þú ert að hlaupa innandyra á braut eða bretti sendir HRM 600 hraða og vegalengd í samhæft snjallúr². Í sundi geymir hann púlsmælingar og sendir þær yfir í samhæft snjallúr þegar sundæfingin er vistuð.
STÖÐULJÓS OG TAKKI
HRM 600 er með LED stöðuljósi sem lætur þig vita þegar það er kveikt á honum eða þegar rafhlaðan er að tæmast. Með takkanum er auðvelt að para mælinn. Einnig er hann með 5 ATM vatnsvörn.
TÆKNIUPPLÝSINGAR
• Þrílitt LED-stöðuljós og stjórnhnappur.
• Stærð mælieiningar: 68,0 × 31,6 × 10,0 mm.
• XS–S: lengd ólar 56–72 cm; brjóstummál 60–85 cm.
• M–XL: lengd ólar 72–106 cm; brjóstummál 80–119 cm.
• Þyngd með M–XL ól: 61 g; mælieining ein og sér: 18 g.
• Vatnsþol: 5 ATM.
• Endurhlaðanleg rafhlaða með sértengi frá Garmin. Ending allt að tveir mánuðir miðað við eina klukkustund á dag.
• Mælieiningin er fjarlægjanleg.
TENGINGAR
Tengist Garmin Connect og sendir gögn um ANT og Bluetooth Low Energy. Styður öruggar Bluetooth-tengingar við samhæf tæki. Fjöldi samtímatenginga: ótakmarkaður með ANT og allt að þrjár með Bluetooth Low Energy.
VIRKNI OG HLAUP
Skráir skref, hitaeiningar, vegalengd og mínútur af krefjandi hreyfingu og styður TrueUp. Mælir hjartsláttartíðni og breytileika hennar (HRV). Með samhæfu snjallúri fást hlaupahraði, vegalengd og ítarleg hlaupagreining, þar á meðal hraðatap í skrefi.
ÆFINGASKRÁNING
Hægt er að stjórna upptöku æfingar í Garmin Connect. Studdar greinar eru meðal annars þolþjálfun, hlaup, hjólreiðar, sund, körfubolti, blak, hokkí, íshokkí, fótbolti, amerískur fótbolti, lacrosse, ruðningur, frisbí, krikket, mjúkbolti, hafnabolti, blandaðar bardagaíþróttir og hnefaleikar.
Með samhæfu snjallúri eða Garmin Connect má mæla hraða og vegalengd í studdum hópíþróttum: körfubolta, hokkí, fótbolta, amerískum fótbolta, lacrosse, ruðningi, frisbí, krikket, mjúkbolta og hafnabolta.
SUND
Geymir hjartsláttargögn í sundi og við notkun án annars tækis og sendir þau áfram þegar tenging næst. Með samhæfu snjallúri má skoða hjartsláttargögn fyrir sundlotur.