KANNAÐU HEIMINN
Þegar þú þarft á áreiðanlegum púlsmæli fyrir æfingu er HRM-200 kjörinn. Hann mælir einnig hjartsláttatíðni.
Sendir gögn í rauntíma yfir í samhæf tæki eða snjallforrit.
Þægilegur í notkun og kemur í tveimur stærðum.
Endingargóður með vatnsvörn upp á 3 ATM.
Það má þvo strappann í vél.
Þú þarft ekki að hlaða mælinn, þú skiptir bara um rafhlöðu. Rafhlöðuendingin er allt að 1 ár.
NÁKVÆMAR MÆLINGAR
Púlsmælirinn sér til þess að þú fáir nákvæmar mælingar á æfingu, hvort sem það er á hlaupaæfingu eða í ræktinni.
TENGINGAR
Þessi púlsmælir sendir gögn í rauntíma í gegnum ANT+® eða Bluetooth®. Talar við samhæf Garmin tæki eða forrit frá þriðja aðila eins og Tacx Training.
ÞÆGILEGUR
HRM 200 er fyrirferðalítill, þægilegur og hægt er að velja á milli tveggja stærða á bringubeltinu (XS-S eða M-XL).
STÖÐULJÓS OG TAKKI
HRM 200 er með LED stöðuljósi sem lætur þig vita þegar það er kveikt á honum eða þegar rafhlaðan er að tæmast. Með takkanum er auðvelt að para mælinn. Einnig er hann með 3 ATM vatnsvörn.
TÆKNIUPPLÝSINGAR
• Tvílitt LED-stöðuljós og stjórnhnappur.
• Stærð mælieiningar: 68,0 × 31,6 × 11,0 mm.
• XS–S: lengd ólar 56–72 cm; brjóstummál 60–85 cm.
• M–XL: lengd ólar 72–106 cm; brjóstummál 80–119 cm.
• Þyngd með M–XL ól: 63 g; mælieining ein og sér: 20 g.
• Vatnsþol: 3 ATM.
• Rafhlaða: CR2032, endist allt að 12 mánuði miðað við eina klukkustund á dag.
• Rafhlöðulok opnast með fjórðungssnúningi; verkfæri er innbyggt í stillingu ólarinnar.
• Mælieiningin er fjarlægjanleg.
TENGINGAR OG MÆLINGAR
Tengist Garmin Connect og sendir gögn um ANT og Bluetooth Low Energy. Styður öruggar Bluetooth-tengingar við samhæf tæki. Fjöldi samtímatenginga: ótakmarkaður með ANT og allt að þrjár með Bluetooth Low Energy.
Mælir hjartsláttartíðni og breytileika hjartsláttartíðni (HRV).