Fáðu tilboð, nýjar vörur og fréttir beint í pósthólfið.

FlipBelt er einföld en byltingarkennd vara sem hefur farið sigurför um heiminn. Beltið er búið til úr spandex-lycra efni með einum vasa allt í gegnum beltið með mörgum aðgangsopum. Þessi op opna fyrir að geyma síma, lykla, kort, orkugel o.s.frv. í beltinu. Þegar búið er að koma hlutunum fyrir inn í beltinu þá snýr maður því við til þess að vera viss um að ekkert detti út.
Beltið er ekki með neinar klemmur eða tölur heldur er búið til með teygjuefni svo hægt er að staðsetja það hvar sem er á miðsvæðinu. Vegna hönnunar FlipBelt þá hreyfist það ekki úr stað sem gerir það frábært í hinar ýmsu æfingar.
FitBelt er einföld, stílhrein lausn fyrir virka einstaklinga, hlaupara, hjólreiðafólk, göngugarpa, þá sem stunda líkamsrækt o.s.frv. Beltið vegur aðeins 85 grömm og er svo þunnt að jafnvel er hægt að nota það innanundir fötin.

