Grænt yerba maté með kakóhýði og tonkabaunum sem gefa drykknum fyllingu og einkennandi bragð.
Innihald: Lífræn matélauf (Ilex paraguariensis) 84,7%, lífrænt kakóbaunahýði 15% og lífrænar tonkabaunir 0,3%. Hlutfall landbúnaðarhráefna úr sanngjörnum viðskiptum samkvæmt Fair for Life er 84,7%.
Tilreiðsla: Fylltu matébollann að tveimur þriðju með maté og ýttu laufunum til hliðar. Bættu við örlitlu köldu vatni og láttu laufin draga það í sig í 2–3 mínútur. Settu síurörið í bollann, helltu um 80°C heitu vatni yfir og láttu trekkja í 2–5 mínútur.
Laufin eru tínd af villtum matétrjám í Paraná í suðurhluta Brasilíu. Þau eru gufumeðhöndluð, þurrkuð og látin þroskast áður en þeim er pakkað. Fair for Life-vottunin tekur til ábyrgra viðskiptahátta og félagslegra og umhverfislegra þátta í aðfangakeðjunni.

