
Frá litlu herbergi við móttökuna upp í heilan sal. Við veljum tæki sem passa rýminu og hönnun hótelsins, setjum þau upp og sjáum um þjónustuna eftir opnun.

Nýtir lítið rými vel
Nett tæki og plásssparandi lausnir svo gestir geti tekið alvöru æfingu, líka í litlum sal.
Passar hönnun hótelsins
Val um liti á ramma og áklæði á völdum línum, svo salurinn passi við restina af hótelinu.
Einfalt fyrir gestina
Tæki sem hver sem er getur gengið að og notað, án kennslu og án þess að kalla á starfsfólk.
Lítil umsýsla
Eigið verkstæði, varahlutir og þjónustusamningur. Biluð tæki standa ekki vikum saman.
Ný þolþjálfunarlína hönnuð fyrir hótel og íbúðarhúsnæði. Gæði og ending atvinnutækja, í nettu formi sem passar í minni rými. Hafðu samband og við sendum þér upplýsingar og verð.
Við höfum hannað og sett upp líkamsræktaraðstöðu fyrir hótel af öllum stærðum.

Við vinnum í samráði við hönnuði og stjórnendur hótelsins og tímasetjum uppsetningu eftir framkvæmdum eða opnun.
Þarfagreining
Rýmið, fjöldi herbergja og hverjir gestirnir eru.
Teikning og tækjaval
Teikning af salnum og tækjalisti, í samráði við hönnuði hótelsins.
Uppsetning
Okkar menn setja upp, tímasett eftir framkvæmdum eða opnun.
Þjónusta
Þjónustusamningur og verkstæði sem bregst hratt við.
Segðu okkur aðeins frá hótelinu og rýminu. Við sendum tillögu að tækjum og uppsetningu.