Þeir sem hafa skoðað sig um í jógaheiminum hafa eflaust heyrt um Yogitoes. Þessi jógahandklæði hafa farið sigurför um heiminn en sérstakir sílíkonhnúðar eru undir handklæðinu sem að bæta grip og halda handklæðinu á sínum stað.
Yogitoes handklæðin eru frábær fyrir þá sem að svitna mikið eða þá sem að stunda hot yoga. Handklæðin draga í sig svitann svo að þú haldir betra gripi í gegnum æfinguna. Eftir æfingu getur þú svo skellt handklæðinu í þvottavélina og haft það svo tilbúið fyrir næstu æfingu.
Handklæðin eru að miklu leyti búin til úr endurunnum efnum en til að mynda eru um það bil 8 endurunnar plastflöskur í hverju handklæði. Litirnir sem notaðir eru á handklæðin innihalda ekki AZO, blý né þungmála.
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.