Xebex Air Rower 3.0 Smart Connect

179.995 kr.

  • Heavy duty róðravél
  • Byggir á stillanlegri loftmótstöðu
  • Smart Connect tenging við snjalltæki
  • Skjár sýnir allar helstu upplýsingar (hraða, vegalengd, tíma o.fl.)
  • Hátt sæti (53cm, svipað og borðstofustóll)
  • Mjúkt sæti gerir lengri æfingar þægilegri en ella
  • Hentar vel í heimahús jafnt sem æfingastöðvar
  • Vélin krefst afar lítils viðhalds
  • Hjól á grunni gera þér auðvelt að færa vélina
  • “1 touch” stillingar á fótstigum
  • Hámarksþyngd notanda 227kg

Á lager

Vilt þú bæta við?
6.000 kr.
1 × Motta undir róðravél

Ekki til á lager

9.995 kr.

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI

Air Rower 3.0 Smart Connect róðravélin frá Xebex er heavy duty róðravél sem að þolir gríðarlega notkun. Vélin byggir á stillanlegri loftmótstöðu en viftan hefur 10 mótstöðustillingar sem auðvelt er að flakka á milli. Smart Connect mælaborðið sýnir allar helstu upplýsingar ásamt því að tengjast snjalltækjum og opna þannig fyrir tengingar við ýmis æfingaröpp. Sætið á vélinni er í 53cm hæð (svipað og borðstofustóll) svo að það er mjög þægilegt að koma sér á vélina.

Virkilega endingargóð róðravél
Air Rower 3.0 róðravélin er þétt og góð í notkun en hún er um 46kg að þyngd og stendur því afar stöðug á gólfi. Xebex hefur álagsprófað vélina með vélörmum sem að toguðu 1.000.000 sinnum fullt tak án þess að nokkuð sæi á vélinni. Hámarksþyngd notanda er 227kg og því geta heimanotendur jafnt sem æfingastöðvareigendur verið vissir um að vélin endist vel.

Smart connect mælaborð
Air Rower 3.0 er búinn Smart Connect mælaborðinu sem gerir þér auðvelt að fylgjast með öllum lykilupplýsingum. Skjárinn sýnir meðal annars tíma, tíma/500m, Wött, Púls (ef þú tengir púlsmæli), vegalengd, tök per mínútu og kaloríur. Skjárinn býður upp á 8 mismunandi stillingar á uppröðun upplýsinga svo að þú getur haft mælieininguna sem þú ert að fylgja í miðjunni. Smart connect kerfið er bluetooth tenging við snjalltæki sem að opnar fyrir notkun á fjölda æfingarappa.

Þægindi í notkun
Hönnuðir Xebex hafa hugsað til hvers snertipunkts en vélin er afar þægilega í notkun. Handfangið er úr gripgóðu efni sem heldur vel gripi þrátt fyrir svita. Sætið á vélinni er mýkra en sæti hjá flestum keppinautum en það er góð breyting að taka langa æfingu án þess að afturendinn verði alveg dofinn. Sætishæðin er líka hærri en gengur og gerist (53cm) svo að aðgengi er betra fyrir þá sem eru að glíma við eymsli í hnjám. Síðast en ekki síst eru Xebex með “1 touch” stillingar á fótstigum sem virkar mjög vel t.d. Þegar nokkrir eru að nota sömu vélina í lotuþjálfun.

Auðvelt að geyma
Þú getur rúllað Air Rower 3.0 til hliðar og lagt hana upp á endann svo að hún taki minna pláss þegar hún er ekki í notkun.

Helstu mál o.fl.

  • Mál í notkun (LxBxH): 251x51x115cm
  • Mál kassa (LxBxH): 146x66x38cm
  • Lengd rennu: 139,7cm
  • Þyngd vélar: 42,1kg
  • Mótstaða: Loft
  • Mótstöðustillingar: Haklaus 10 þrepa stilling
  • Mælaborð: Smart connect
  • Mælaborð sýnir: Heildartíma, tími/500m, meðalvegalengd per tog, hámarkspúls, kaloríurbrennsla per klukkutíma, kraftkúrva, hámarks wött, watt per tog, meðalwött.
  • Innbyggð prógröm: quick start, competition racing, interval/tabata, Target time, Target distance, Target calories, Target Strokes, Target heart rate o.fl.
  • Tengimöguleikar: Smart connect kerfið tengist við snjalltæki og virkar með ýmsum öppum.
  • Hámarksþyngd notanda: 227kg
  • Framleiðsluland: Taívan