Teeter X1 Veltibekkur

79.995 kr.

  • Flextech bak eykur virkni
  • Bekkurinn er í jafnvægi svo auðvelt er að stilla sig af
  • Ökklahlífar eru þægilegar
  • Bekkurinn er samanbrjótanlegur
  • Mikil áhersla lögð á endingu og öryggi
  • Fyrir 142-198cm háa einstaklinga
  • Þolir allt að 136kg

Á lager

FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | MILLISTÓR PAKKI

Teeter er eitt af alþekktustu merkjunum í veltibekkja bransanum en merkið er þekkt fyrir að framleiða gæða veltibekki sem eru öruggir, endingargóðir og búnir sniðugum aukahlutum sem geta aukið virkni þeirra. Teeter veltibekkirnir koma nánast alveg samsettir (80% assembled) og eru þeir fyrstu til þess að fá FDA vottun sem heilbrigðistæki. Teeter hafa birt mikið magn af æfingum og leiðbeiningum sem nálgast má í gegnum appið þeirra „Teeter Move“. (einnig er hægt að nálgast samsetningarleiðbeiningar í gegnum annað app frá þeim sem heitir „BILT“)

Teeter veltibekkirnir eru með réttan þyngdarpunkt svo að þú getur hreyft þig upp/niður án mikillar fyrirhafnar. Ökklafestingar eru mótaðar og halda vel við fætur án þess að valda óþægindum. Flextech bakið í bekkjunum leyfir líkamanum að renna til og ná þannig meiri teygju – einnig fylgja með aukahlutir sem geta veitt punktanudd og mjóbaksstuðning.

X1 bekkurinn er grunnurinn í FitSpine línunni frá Teeter en hann hefur engu að síður alla þessa kosti sem eru taldir upp í textanum hér fyrir ofan. Ef þú vilt framlengingu á stillingarhandfangi fyrir ökklafestingar, Stærri handföng til beggja hliða og EZ traction handföng sem auðvelda stillingar þá getur þú skoðað næstu týpu fyrir ofan, Teeter X3.

  • Hæðarmörk notenda: 142-198cm
  • Hámarksþyngd notanda: 136kg
  • Þyngd veltibekksins: 27,4kg
  • Stærð í notkun (LxBxH): 205,7 x 73,2 x 219,7cm
  • Stærð samanbrotinn (LxBxH): 50,8 x 73,2 x 167,6cm
  • Stærð kassa (LxBxH): 122,9 x 74,2 x 23cm