Manduka GRP Adapt jógadýna
15.495 kr.
- Gripgóð jógadýna frá Manduka
- Hönnuð fyrir hot yoga
- Opinn svampur dregur í sig vökva
- Hægt að nota með eða án handklæðis
- Dýnan er 180x66cm og 5mm þykk
Á lager
FÁÐU SENT EÐA SÆKTU | LÍTILL PAKKI
Frí sending ef þú pantar vörur í þessum flokk fyrir meira en 15.000 kr.
- Heimsending með TVG Xpress: 995 kr.
- Sent á pósthús: 795 kr.
- Sækja í verslun: Frítt
GRP jógadýnan frá Manduka var sérstaklega hönnuð fyrir þá sem elska hot yoga. Dýnan er með opnum svampi en allar aðrar dýnur frá Manduka eru með lokuðum svampi. Það sem að opni svampurinn hefur fram yfir lokaðann er að hann dregur í sig vökva og því verður dýnan ekki jafn sleip þegar hún verður rök.
Dýnan er 5mm þykk og dempar því vel, yfirborðið er afar slétt en gripgott. Margir hverjir munu getað notað dýnuna í hot yoga tímum án þess að þurfa handklæði en þó eru alltaf einhverjir sem að munu þurfa handklæði þar sem að dýnur (líkt og handklæði) geta bara tekið við svo og svo miklum vökva. Svampurinn í dýnunni inniheldur meðal annars örlítið af kolefni sem að minnkar líkur á því að það komi vond svitalykt af dýnunni.
Kjarninn og botn dýnunnar eru úr náttúrulegu gúmmí sem fengið er frá sjálfbærum framleiðslusvæðum. Dýnan sjálf er framleidd á Spáni og framleiðsluferlið sleppir ekki neinum skaðlegum efnum út í andrúmsloftið.
Ath. dýnur með opnum svampi endast skemur en dýnur með lokuðum svampi. Ef þú notar dýnuna mikið þá þarf að skipta henni út annað slagið en góð umhirða lengir endingartíma. Manduka býður upp á sérstakt hreinsiefni sem að virkar vel á þessa dýnu.
66fit gaddaboltar 8cm
1.995 kr.Compressport kálfahlífar
5.995 kr.FlipBelt hlaupabelti
4.995 kr.Nuddbolti
995 kr.Polar H10 N Púlsmælir
14.995 kr.Tiger Tail nuddkefli
5.995 kr. – 6.995 kr.TRX Nuddrúlla
3.295 kr. – 4.995 kr.OPNUNARTÍMI
- Virka daga: 10-18
- Laugardaga: 11-15
- Sunnudaga: Lokað
- 31. des til 1. jan: Lokað